Íþróttaráð - 197
- Kl. 15:00 - 17:06
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 197
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Arnar Þór Jóhannesson
- Birna Baldursdóttir
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018 - Melgerðisás
Málsnúmer 2016060068Tekið fyir erindi skipulagsdeildar Akureyrarbæjar dagsett 8. september 2016 þar sem óskað er eftir umsögn íþróttaráðs á skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytinga í Hlíðarhverfi.
Íþróttaráð gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytinga í Hlíðarhverfi.
íþróttaráð óskar eftir í samráði við skipulagsdeild að fundin verði framtíðarlausn fyrir kast- og æfingasvæði UFA samhliða breytingum á aðalskipulagi.Kvenna-/jafnréttisstyrkir íþróttaráðs
Málsnúmer 2014040042Lagt fram til kynningar minnisblað framkvæmdarstjóra vegna úthlutunar kvenna-/jafnréttisstyks íþróttaráðs árið 2016.
AfreksþjálfunGS - óskað eftir úthlutun á æfingatímum haust/vetur 2016-2017
Málsnúmer 2016090191Erindi dagsett 30. ágúst frá Gísla Sigurðssyni þar sem óskað er eftir tímum í íþróttahúsum Akureyrarbæjar vegna AfreksþjálfunarGS. Meðfylgjandi er umsögn stjórnar ÍBA til erindisins.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Íþróttabandalag Akureyrar sér um tímaúthlutun í íþróttamannvirkjum til aðildarfélaga sinna. Sú tímaúthlutun nær einnig til afreksþjálfunar innan íþróttafélaga.
Tímaleiga í íþróttamannvirkjum til annarra en aðildarfélaga ÍBA er skv. gjaldskrá bæjarins.
Hnefaleikafélag Akureyrar - ósk um aðgang að NORA
Málsnúmer 2016100027Erindi dagsett 28. september 2016 frá Almari Ögmundssyni formanni Hnefaleikafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir aðgang að NORA kerfinu og heimild til að taka við frístundastyrkjum Akureyarbæjar.
Íþróttaráð samþykkir erindið.
Golfklúbbur Akureyrar - ósk um styrk vegna Íslandsmóts á Akureyri 2016
Málsnúmer 2015110149Erindi frá Ágústi Jenssyni framkvæmdastjóra GA þar sem uppgjör Íslandsmótsins á Jaðri í sumar er lagt fram og óskað eftir að styrkumsókn GA vegna Íslandsmótsins til íþróttaráðs verði tekin fyrir aftur.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Þórunn Sif Harðardóttir D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.Guðrún Þórsdóttir vék af fundi kl. 16:25.
Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð
Málsnúmer 2016050293Umræður og vinna við fjárhagsáætlun 2017.