Umhverfisnefnd - 116
- Kl. 10:00 - 11:50
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 116
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Kristinn Frímann Árnason
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Sandgerðisbót - umsókn um breytingar á deiliskipulagi
Málsnúmer 2015060121Tekið fyrir erindi frá Skipulagsstofnun dagsett 19. apríl 2016 þar sem óskað er umsagnar Akureyrarbæjar á tillögu að matsáætlun hreinsistöðvar fráveitu á Akureyri.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillögu að matsáætlun hreinsistöðvar.
Samband íslenskra sveitarfélaga - stefnumótun í úrgangsmálum
Málsnúmer 2016040214Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps Sambands íslenskra sveitarfélaga um stefnu í úrgangsmálum.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við skýrsluna.
Svifryk og svifryksmælar
Málsnúmer 2016050038Umræður um loftgæði og svifryksmælingar á Akureyri.
Umhverfisnefnd Akureyrarbæjar skorar á Umhverfisstofnun að gera bragarbót á svifryksmæli á Akureyri. Ítrekaðar bilanir hafa verið á mælunum í sveitarfélaginu og óskar umhverfisnefnd eftir því að Umhverfisstofnun komi þessu í þannig ástand að vel verði unað og að hægt sé að treysta mæligildum. Nauðsynlegt sé að hafa virkan mæli svo að hægt sé að meta árangur í baráttunni við svifryk.
Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - umsagnir nefnda
Málsnúmer 2016050019Tekin til umsagnar drög að mannauðsstefnu Akureyrarbæjar.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin í heild en bendir á að bæta mætti upplýsingagjöf á launaseðlum.
Óskar Ingi Sigurðsson B-lista vék af fundi kl. 11:20.
Umhverfisnefnd - stefnuræða
Málsnúmer 2016050037Formaður umhverfisnefndar fór yfir vinnu við stefnuræðuna sem hún mun flytja á bæjarstjórnarfundi þann 17. maí nk.
Umhverfisnefnd þakkar kynninguna.