Fræðsluráð - 50
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 50
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Einar Gauti Helgasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Bryndís Björnsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Drífa Þórarinsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Hafdís Ólafsdóttirfulltrúi leikskólakennara
- Hanna Dóra Markúsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirvaramaður foreldra leikskólabarna
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Rakel Alda Steinsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
- Erna Rós Ingvarsdóttirfundarritari
KLLSK - Leikskólinn Klappir við Glerárskóla
Málsnúmer 2018050021Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri UMSA kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda.
Afgreiðslu frestað.
Lundarskóli - A-álma - LUSK
Málsnúmer 2020060448Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri UMSA kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda.
Afgreiðslu frestað.
Framkvæmdaáætlun fræðslusviðs 2022
Málsnúmer 2021041329Tillaga að framkvæmdaáætlun fyrir fræðslusvið fyrir árið 2022 lögð fram til staðfestingar.
Meirihluti fræðsluráðs samþykkir framlagðar tillögur að framkvæmdaáætlun og leggur áherslu á að ljúka þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar.
Þórhallur Harðarson D-lista situr hjá. Ástæður þess er að Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri var hlynntur byggingu nýs Lundarskóla fremur en að fara í miklar endurbætur á gömlu núverandi húsnæði.Frumvarp um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
Málsnúmer 2021041566Kynning á frumvarpinu.
Fylgiskjöl
Dagforeldrar - launatrygging, minnisblað
Málsnúmer 2021041577Minnisblað um launatryggingu fyrir dagforeldra lagt fram til afgreiðslu.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða að greiða launatryggingu fyrir eitt laust pláss í daggæslu til þeirra dagforeldra sem ekki hafa náð að fylla í öll pláss á tímabilinu september til desember 2021, með því skilyrði að farið sé eftir reglum um launatryggingu sem um hana gilda.