Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 829
- Kl. 13:00 - 13:30
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 829
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Höfðahlíð leikskóli - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2020010175Erindi dagsett 9. janúar 2020 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum fyrir byggingu leikskóla á lóð Glerárskóla við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomar nýjar teikningar 1. september 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gránufélagsgata 51 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021041271Erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd VN Fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 51 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 25. ágúst 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Vindmyllur - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021080835Erindi dagsett 19. ágúst 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir vindmyllum og gámaskúr með stjórnbúnaði í Grímsey.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð
Málsnúmer 2021081130Erindi dagsett 25. ágúst 2021 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð á lóð nr. 2 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Glerárgata 28 - umsókn um byggingarleyfi, dansstúdio
Málsnúmer 2021081147Erindi dagsett 25. ágúst 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Sjófugls ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð í húsi nr. 28 við Glerárgötu. Fyrirhugað er að opna dansstúdíó. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Móasíða 1A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021081231Erindi dagsett 27. ágúst 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Unique Chillfresh Iceland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 1A við Móasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Sómatún 29 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021090006Erindi dagsett 31. ágúst 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd BF Bygginga ehf. sækir um að hefja jarðvegsframkvæmdir fyrir raðhúsi á lóð nr. 29 við Sómatún. Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir heimild til jarðvegsskipta í byggingarreit hússins í samræmi við deiliskipulag.
Múli - umsókn um byggingarleyfi fyrir sólarsellum
Málsnúmer 2021090043Erindi dagsett 1. september 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir uppsetningu á sólarsellum á lóðinni Múla í Grímsey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Móasíða 1B - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi
Málsnúmer 2021050993Erindi dagsett 20. maí 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Unique Chillfresh Iceland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1B við Móasíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. ágúst 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.