Ungmennaráð - 55
- Kl. 16:00 - 18:00
- Rósenborg
- Fundur nr. 55
Nefndarmenn
- Aldís Ósk Arnaldsdóttir
- Arna Lísbet Ásgeirsdóttir
- Bjarki Orrason
- Fríða Björg Tómasdóttir
- Heimir Sigurpáll Árnason
- Íris Ósk Sverrisdóttir
- Leyla Ósk Jónsdóttir
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- Ólöf Berglind Guðnadóttir
- París Anna Bergmann Elvarsd.
- Rebekka Rut Birgisdóttir
Starfsmenn
- Hafsteinn Þórðarsonumsjónarmaður ungmennaráðs ritaði fundargerð
- Arnar Már Bjarnasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
- Ari Orrasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
Mánaðarleg yfirferð
Málsnúmer 2022120502Farið var yfir verkefni sem hafa átt sér stað frá því að ungmennaráð fundaði í byrjun september. Rætt var um ungmennaráðstefnu UMFÍ sem fór fram 20.- 22. september og nefndafundi sem fulltrúar ungmennaráðs sátu sem áheyrnarfulltrúar í september.
Gjaldfrjálsar máltíðir í grunnskólum
Málsnúmer 2024080099Lagt var fram til upplýsingar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um skilgreiningu á skólamáltíðum.
Ungmennaráð fagnar gjaldfrjálsum hádegismat í grunnskólum, en óskar eftir því að ávaxta- og mjólkuráskrift verði einnig gjaldfrjáls. Auk þess óskar ungmennaráð eftir því að allir skólar bjóði upp á morgunmat, t.d. hafragraut.
Bæjarstjórnarfundur ungmennaráðs 2024
Málsnúmer 2023030583Farið var yfir bæjarstjórnarfund unga fólksins sem haldinn var í apríl 2024. Rætt var um niðurstöðu mála og hvort ungmennaráð vildi fylgja þeim betur eftir.
Fundir með nemendaráðum
Málsnúmer 2022120502Rætt var um fundarröð með nemendaráðum grunnskólanna og framhaldsskólanna á Akureyri. Ungmennaráð ætlar að skipuleggja fundi með nemendaráðum í október og nóvember.
Íþróttabandalag Akureyrar - tímaúthlutun
Málsnúmer 2022080965Lögð var fram til kynningar tímaúthlutun til aðildarfélaga ÍBA í íþróttamannvirkjum Akureyrarbæjar fyrir veturinn 2024-2025.
Styrkir
Málsnúmer 2022120502Rætt var um möguleika ungmennaráðs til þess að sækja sér styrk fyrir viðburði innanlands. Ungmennaráð ætlar að sækja um styrk til þess að hitta önnur ungmennaráð á landinu og efla tengsl milli ráða.
Ungmennaráð - mál frá fræðslu- og lýðheilsuráði
Málsnúmer 2022120502Kynnt voru eftirfarandi mál frá fræðslu- og lýðheilsuráði:
- Kynning frá Oddeyrarskóla. Foreldrafærnisnámskeið fyrir foreldra í fyrsta bekk.
- Hagaleikskóli - undirbúningur.
- Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðis 2025-2027.Ungmennaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022120502Ungmennaráð ræddi bréf tveggja nemenda í Menntaskólanum á Akureyri til skólastjórnenda skólans þar sem lýst er yfir áhyggjum um innihald námsganga sem kennd eru við skólann. Ungmennaráð ætlar að gefa sína umsögn og skila til nemandanna.