Stjórn Akureyrarstofu - 298
- Kl. 12:00 - 14:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 298
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Beiðni um stuðning við upptökur á sinfónískri tónlist fyrir alþjóðlegan afþreyingariðnað
Málsnúmer 2020050065Erindi dagsett 30. apríl 2020 frá Þuríði H. Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra MAk og Preben Jóni Péturssyni stjórnarformanni MAk þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 3 milljónir króna til að styðja við upptökur á sinfónískri tónlist fyrir alþjóðlegan afþreyingariðnað.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að vísa erindinu til aukaúthlutunar úr Menningarsjóði sem fyrirhugað er að fara í síðar á árinu.
Fylgiskjöl
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Málsnúmer 2004050105Minnisblað deildarstjóra Akureyrarstofu, safnstjóra Minjasafnsins og formanns stjórnar Iðnaðarsafnsins lagt fram til umræðu.
Sóley Björk Stefánsdóttir formaður stjórnar Iðnaðarsafnsins mætti á fundinn og fór yfir stöðu og framtíð Iðnaðarsafnsins.Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir afstöðu bæjarráðs og stjórnar Minjasafnsins til þeirrar tillögu sem kemur fram í framlögðu minnisblaði.
Markaðsátak eftir COVID-19
Málsnúmer 2020040169Verklagsreglur vegna úthlutunar úr nýjum viðburða- og vöruþróunarsjóði sem ætlað er að efla framboð afþreyingar á árinu 2020 lagðar fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir verklagsreglurnar.
Ferðamálafélag Hríseyjar - beiðni um niðurgreiðslu fargjalda í ferjuna í sumar
Málsnúmer 2020050123Fundargerð Hverfisráðs Hríseyjar nr. 135 frá 30. apríl sl. var lögð fyrir bæjarráð þann 7. maí sl. Í fyrsta fundarlið er tekið fyrir innkomið bréf frá Ferðamálafélagi Hríseyjar og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu í Hrísey þar sem kemur fram að rekstraraðilar í ferðaþjónustu hafi miklar áhyggjur af komandi sumri. Í Hrísey er hafin vinna við að búa til skemmtilegar pakkaferðir til Hríseyjar með góðum afsláttum fyrir fólk sem kýs að nota hér ferðaávísun, sem ríkisstjórnin ætlar að gefa út. Jafnframt kemur fram:
Til að styðja við þetta átak okkar og renna styrkari stoðum undir atvinnulífið í eyjunni, förum við þess á leit við Akureyrarbæ að hann styrki okkur með því
að greiða fargjöld í Hríseyjarferjuna fyrir alla í einn mánuð í sumar. Slík ráðstöfun myndi skila miklu til eyjarinnar og yrði gott markaðsátak sem hægt
væri að ráðast í vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Við erum þess fullviss að margir íbúar á Norðurlandi sem ekki hafa komið í Hrísey myndu nýta sér þetta tilboð og einnig aðrir landsmenn.
Hverfisráð styður erindið heilshugar og vísar því áfram til bæjarráðs.
Niðurstaða bæjarráðs var að vísa erindinu til stjórnar Akureyrarstofu.Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að vísa erindinu í nýjan viðburða- og vöruþróunarsjóð sem hefur það að markmiði að vega á móti neikvæðum afleiðingum COVID-19.
Hríseyjarhátíð 2020
Málsnúmer 2020050152Erindi dagsett 27. febrúar 2020 frá Lindu Maríu Ásgeirsdóttur f.h. undirbúningshóps að Hríseyjarhátíð 2020 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 500.000 vegna Hríseyjarhátíðar 2020.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 300.000 til Hríseyjarhátíðar 2020.
Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands
Málsnúmer 2011060107Skýrsla Flugklasans, staða mars 2020, lögð fram til kynningar.
Menningarsjóður 2020
Málsnúmer 2020030481Á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu sem fram fór á netinu á sumardaginn fyrsta voru opinberaðar eftirfarandi viðurkenningar stjórnar Akureyrarstofu.
Heiðursviðurkenningar menningarsjóðs:
Gestur Einar Jónasson leikari, fjölmiðla- og safnamaður.
Viðurkenning Húsverndarsjóðs:
Snorri Guðvarðsson málarameistari fyrir ævistarf.
Byggingarlistaverðlaun Akureyrar árið 2020:
Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt FAÍ, hjá arkitektastofunni AVH ehf. og Bergfesta byggingarfélag fyrir útfærslu fjölbýlishúsaíbúa við Halldóruhaga 8-14.
Starfslaun listamanna 2020:
Ásdís Arnardóttir sellóleikari.Stjórn Akureyrarstofu óskar viðurkenningarhöfum og bæjarlistamanni innilega til hamingju.
Gásakaupstaður - framtíð sjálfseignarstofnunarinnar og Miðaldadaga
Málsnúmer 2019030230Erindi dagsett 7. maí 2020 frá Kristínu Sóleyju Björnsdóttur formanni stjórnar Gásakaupstaðar ses, þar sem tilkynnt er að Miðaldadagar 2020 verða ekki haldnir sökum COVID-19.
Ársskýrsla samfélagssviðs
Málsnúmer 2020050003Ársskýrsla samfélagssviðs fyrir árið 2019 lögð fram til kynningar.
Uppbygging vegna sögutengdrar ferðaþjónustu
Málsnúmer 2020050017Erindi dagsett 4. maí 2020 frá Birni H. Reynissyni verkefnastjóra á Markaðsstofu Norðurlands þar sem vakin er athygli á möguleikum til uppbyggingar á sögutengdri ferðaþjónustu.
Úthlutun úr Safnasjóði 2020
Málsnúmer 2020050185Lagðar fram til kynningar upplýsingar um úthlutun úr Safnasjóði til Listasafnsins á Akureyri og Minjasafnsins á Akureyri.
Listasafnið fékk samtals 10,9 milljónir króna og Minjasafnið 15 milljónir króna.Stjórn Akureyrarstofu fagnar þeim styrkveitingum sem söfnin fengu úthlutað úr Safnasjóði og óskar starfsfólki þeirra til hamingju með árangurinn.
Fylgiskjöl
Barnamenningarhátíð á Akureyri
Málsnúmer 2019030063Vegna COVID-19 faraldursins þurfti að fresta Barnamenningarhátíð sem halda átti í apríl. Akureyrarstofa og samstarfsaðilar leggja til að hátíðin verði haldin í október, þannig að viðburðir verði allar helgar þann mánuð.
Stjórn Akureyrarstofu fagnar því að Barnamenningarhátíð fari fram og samþykkir tillöguna.
Sigurhæðir - leiga húsnæðis
Málsnúmer 2019090404Erindi dagsett 14. maí 2020 frá Davíð Smárasyni framkvæmdastjóra Hótels Akureyri þar sem tilkynnt er að vegna gjörbreyttra rekstraraðstæðna sé fallið frá tilboði í leigu á Sigurhæðum.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnun að skoða með framhald málsins í ljósi stöðunnar.