Fræðslunefnd - 1
25.04.2017
Hlusta
- Kl. 11:00 - 11:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirvaraformaður
- Dan Jens Brynjarsson
- Halldór Sigurður Guðmundsson
- Karólína Gunnarsdóttir
- Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Námsstyrkjasjóður embættismanna - 2017
Málsnúmer 2017040041Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fór yfir stöðu námsstyrkjasjóðs embættismanna.
Fyrirliggjandi úthlutun úr sjóðnum bindur ráðstöfunarfé hans til ársloka 2018. Ástæðan er fækkun embættismanna við stjórnsýslubreytingarnar og þar með minni tekjur sjóðsins. Miðað við núverandi greiðendur í sjóðinn nægja tekjur sjóðsins einungis fyrir úthlutun á fjögurra mánaða námsleyfi á ári.
Staða sjóðsins býður því ekki upp á úthlutun úr sjóðnum í haust.