Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 955
- Kl. 14:15 - 15:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 955
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Njarðarnes 3-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024020601Erindi dagsett 12. febrúar 2024 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Regins atvinnuhúsnæðis ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 3-7 við Njarðarnes. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Ægisgata 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2023082170Erindi dagsett 29. ágúst 2023 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Alexanders G. Eðvardssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu á húsi nr. 7 við Ægisgötu á Akureyri. Innkomin ný gögn 14. febrúar 2024 eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hvannavellir 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024020847Erindi dagsett 16. febrúar 2024 þar sem Bent Larsen Fróðason fyrir hönd BB bygginga ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 10 við Hvannavelli. Innkomin gögn eftir Bent Larsen Fróðason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hafnarstræti 99-101 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024011365Erindi dagsett 26. janúar 2024 þar sem Jón Davíð Ásgeirsson fyrir hönd KK bygg ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á 2. hæð (mhl 03) í byggingu nr. 99-101 við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Þingvallastræti 50 - umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)
Málsnúmer 2024020576Erindi dagsett 12. febrúar 2024 Þar sem Akureyrarbær sækir um niðurrif á Pálmholti á lóð nr. 50 við Þingvallastræti (mhl.01).
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.