Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 780
- Kl. 13:00 - 13:10
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 780
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Arnar Ólafsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Strandgata 53 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020080334Erindi dagsett 12. ágúst 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd S53 ehf., kt. 430420-0540, sækir um að nýr skemmti- og veitingasalur verði innréttaður vestan megin í húsinu ásamt nýju eldhúsi og starfsmannaaðstöðu að Strandgötu 53, mhl. 01. Meðfylgjandi er teikning eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hamarstígur 37 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2020080843Erindi dagsett 25. ágúst 2020 þar sem André Sandö sækir um úrtak úr kantsteini svo hægt sé að nýta bílastæði á lóð við Hamarstíg 37. Meðfylgjandi er mynd og samþykki meðeiganda.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 4 metra úrtaki úr kantsteini með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.