Fræðslu- og lýðheilsuráð - 21
- Kl. 13:00 - 15:35
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 21
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Bjarney Sigurðardóttir
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Tinna Guðmundsdóttir
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Ísak Már Jóhannessonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Jóhannesdóttirsviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála
- Erna Rós Ingvarsdóttirverkefnastjóri leikskóla
- Sylvía Dögg Hjörleifsdóttirverkefnastjóri grunnskóla
Stuðningur við íþróttaiðkun barna með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2022111455Halla Birgisdóttir forstöðumaður tómstundamála og Salka Sigurðardóttir verkefnastjóri félagslegrar liðveislu kynntu hugmynd að tilraunarverkefni til að mæta börnum með sértækan vanda í íþróttastarfi.
Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar fyrir góða kynningu og felur sviðsstjóra, í samstarfi við forstöðumann tómstundamála, að leggja fram ítarlega verkáætlun og leggja fyrir ráðið eftir áramót.
Skíðafélag Akureyrar - Andrés Andar leikarnir
Málsnúmer 2018010433Erindi dagsett 21. nóvember 2022 frá Fjalari Úlfarssyni formanni Andrésarnefndar Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir endurnýjun á styrktarsamningi við félagið vegna Andrésar Andar leikanna þar sem núverandi samningur fellur úr gildi um næstu áramót.
Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð felur sviðsstjóra, í samstarfi við forstöðumann íþróttamála, að endurnýja styrktarsamning við Skíðafélag Akureyrar.
Gjaldskrá fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023
Málsnúmer 2022090561Lögð fyrir gjaldskrá fræðslu- og lýðheilsusviðs árið 2023.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur að breytingum á gjaldskrám fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023 og vísar málinu áfram til bæjarstjórnar.
Ísak Már Jóhannesson mætti á fundinn kl. 14:25.
Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023
Málsnúmer 2022080363Lögð fram til kynningar starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs fyrir árið 2023.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Ósk um breytingu á skóladagatali
Málsnúmer 2022111611Starfsfólki Glerárskóla stendur til boða að fara í námsferð í vor. Farið verður frá Akureyri þann 27. apríl. Glerárskóli óskar eftir breytingu á skóladagatalinu þannig að skipulagsdagur sem settur er föstudaginn 19. maí 2023 verði færður á föstudaginn 28. apríl.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindið.
Niðurstöður skólaþings
Málsnúmer 2022111235Samantekt á helstu niðurstöðum skólaþings Brekkuskóla.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Brekkuskóla fyrir erindið og vísar því til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs 2022
Málsnúmer 2022030187Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs janúar-október 2022.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Bréf til fræðslu og lýðheilsuráðs frá sérkennslustjórum leikskóla
Málsnúmer 2022111605Erindi dagsett 11. nóvember 2022 frá sérkennslustjórum leikskóla.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar sérkennslustjórum fyrir erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.