Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 820
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 820
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
- Hjálmar Árnason
Espilundur 7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2021050376Erindi dagsett 10. maí 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Júlí Óskar Antonsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 7 við Espilund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson. Fyrir liggur samþykki íbúa Espilundar 5 og 9 og Birkilundar 6, 8 og 10. Fyrir liggur breytt deiliskipulag. Innkomnar nýjar teikningar 28. júní 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þórunnarstræti 138 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021060011Erindi dagsett 1. júní 2021 frá Gísla Jóni Kristinssyni þar sem hann fyrir hönd Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sækir um leyfi til að breyta fangaklefum á 1. hæð í skrifstofuhúsnæði, breytingu í kjallara og fleiri breytingum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Jón Kristinsson. Innkomnar nýjar teikningar og brunahönnun 24. júní 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gleráreyrar 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021060014Erindi dagsett 1. júní 2021 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd EF1 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á rými 42 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar, Glerártorgi. Breytingin er innra rými ásamt veitingaaðstöðu á gangi hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur. Innkomnar nýjar teikningar 22. júní 2021 og ný brunahönnun 23. júní 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Óseyri 4 - stöðuleyfi fyrir söluvagn
Málsnúmer 2021061037Erindi dagsett 11. júní 2021 þar sem Hjörleifur Árnason sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn á lóðinni nr. 4 við Óseyri frá 1. september 2021 til 1. september 2022. Meðfylgjandi er mynd sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu.
Innkomið 28. júní 2021 samþykki eigenda eigna á lóðinni.Byggingarfulltrúi samþykkir umbeðið stöðuleyfi.
Margrétarhagi 14 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021061685Erindi dagsett 23. júní 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd VA-verktaka ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð 14-22 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson. Jafnframt er sótt um byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum á grundvelli fyrirliggjandi teikninga.
Byggingarfulltrúi samþykkir umbeðið byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum en frestar afgreiðslu að öðru leiti með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Skarðshlíð 23-25 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021040456Erindi dagsett 9. apríl 2021 þar sem Sigríður Mack fyrir hönd Búfesti hsf. sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 23-25 við Skarðshlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigríði Mack. Innkomin ný gögn 30. júní 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Tungusíða 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021050431Erindi dagsett 10. maí 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Fasteigna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 6 við Tungusíðu. Fyrirhugað er að gera breytingar á neðri hæð hússins mhl. 01 og neðri hæð mhl. 02. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 24. júní 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Heimaland 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021061686Erindi dagsett 23. júní 2021 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Hálanda ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir gistiskála á tveimur hæðum með alls 24 gistieiningum í húsi nr. 5 á lóð nr. 3 við Heimaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomin ný gögn 30. júní 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Skarðshlíð 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021060316Erindi dagsett 3. júní 2021 frá Tryggva Tryggvasyni þar sem hann fyrir hönd Búfesti hsf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 31 við Skarðshlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomin ný gögn 1. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.