Umhverfis- og mannvirkjaráð - 138
- Kl. 08:15 - 11:00
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 138
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Óshólmanefnd 2022 - 2026
Málsnúmer 2022080342Fundargerð óshólmanefndar dagsett 4. apríl 2023 lögð fram til kynningar. https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir/Osholmanefnd
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur starfsmönnum umhverfis- og mannvirkjasviðs að hafa samband við hlutaðeigandi og afla upplýsinga um næstu skref í samræmi við umræður á fundinum með það í huga að stilla hæð þröskulds í Brunná til að endurheimta votlendi eins og kostur er.
Bílastæðasjóður - framkvæmdir 2023
Málsnúmer 2023041172Lagt fram minnisblað dagsett 27. apríl 2023 varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir bílastæðasjóðs árið 2023.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur starfsmönnum umhverfis- og mannvirkjasviðs að vinna málin áfram miðað við umræður á fundinum.
Kirkjutröppur - endurbætur
Málsnúmer 2021011641Lagt fram minnisblað dagsett 27. apríl 2023 varðandi opnun tilboða í framkvæmdir við kirkjutröppurnar á Akureyri.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Þórhallur Harðarsson D-lista bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hann af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Lækjarsel ehf. á grundvelli tilboðs þeirra.
Hlíðarfjallsvegur - niðurfelling hluta vegar af vegaskrá
Málsnúmer 2023040650Lagt fram til kynningar erindi Vegagerðarinnar dagsett 17. apríl 2023 þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða niðurfellingu kafla Hlíðarfjallsvegar milli Rangárvalla og Hrímlands.
Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð telur að Síðubraut sé fyrsta gata í þéttbýli en ekki Hrímland og vísar málinu til bæjarráðs til frekari umræðu og afgreiðslu.
Yfirferð á viðhaldi fasteigna
Málsnúmer 2023041173Lagt fram minnisblað dagsett 28. apríl 2023 varðandi fyrirhugað viðhald á nokkrum eignum.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Þórsstúka
Málsnúmer 2023041331Lagt fram minnisblað dagsett 27. apríl 2023 varðandi aðstöðu rafíþróttadeildar í stúku Þórs.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar málinu til fræðslu- og lýðheilsuráðs vegna framkvæmdaáætlunar 2024.
Úrgangsmál - fyrirkomulag og útboð
Málsnúmer 2022110167Lögð fram drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Akureyrarbæ og drög að reglum um djúpgáma.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.