Umhverfis- og mannvirkjaráð - 105
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 105
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Umhverfis- og loftslagsstefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2020110192Lögð fram drög að Umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar 2020-2030 ásamt tillögu að aðgerðaáætlun.
Vegagerðin - samningur til stígauppbyggingar
Málsnúmer 2020060095Lögð fram drög að viðbótarsamningi milli Vegagerðarinnar og Akureyrarbæjar um framkvæmd og undirbúning framkvæmda við göngu- og hjólastíga meðfram umferðarþungum götum á Akureyri - viðbót við samning frá maí 2020.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samningsdrögin og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerðar.
Glerárdalur - styrkveiting 2020-2021
Málsnúmer 2020050067Framkvæmdir við stíg inn á Glerárdal ræddar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir stöðuskýrslu um framkvæmdina til þessa og að lögð verði fram verklýsing á áframhaldandi vinnu.
Leikskólinn Hulduheimar KOT - ósk um að ættleiða fjöru
Málsnúmer 2021081382Tekin fyrir beiðni Hulduheima um að taka að sér fjöru, hreinsa hana og nefna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar erindinu, þakkar fyrir framtak krakkanna á Hulduheimum og vísar tillögu um formlega nafngift til skipulagsráðs.
Fjárhagsáætlun UMSA 2022
Málsnúmer 2021081199Lagðar fram gjaldskrár UMSA fyrir 2022.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrár UMSA fyrir árið 2022 og vísar þeim til bæjarlögmanns og bæjarráðs.