Stjórn Akureyrarstofu - 238
12.10.2017
Hlusta
- Kl. 16:15 - 19:00
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 238
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Íbúakort
Málsnúmer 2017090124Lagt fram álit bæjarlögmanns. Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Ingu Þöll fyrir vel unnið álit og góða kynningu. Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Eva Hrund Einarsdóttir vék af fundi kl. 17:00.
Fylgiskjöl
Listasafn - endurbætur
Málsnúmer 2014010168Lagður fram listi vegna kaupa á stofnbúnaði fyrir Listasafnið.
Stjórn Akureyrarstofu gerir ekki athugasemdir við listann og vísar honum til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Fundarhlé gert kl. 17:10.
Akureyrarstofa - samráðsfundir með forstöðumönnum menningarstofnana 2017
Málsnúmer 2017040024Fundi framhaldið kl. 17:20 á Minjasafninu. <br />
Farið var í heimsókn á Minjasafnið þar sem Haraldur Þór Egilsson safnstjóri tók á móti stjórninni.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Haraldi Þór fyrir góðar móttökur og kynningu á starfsemi Minjasafnsins.