Umhverfis- og mannvirkjaráð - 177
- Kl. 08:15 - 10:41
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 177
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttirvaraformaður
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Halla Birgisdóttir Ottesenáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- Íris Ósk Sverrisdóttiráheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur
Málsnúmer 2024030763Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 24. janúar 2025 varðandi framkvæmdir við gervigrasvöll á félagssvæði Þórs.
Lyfta - Vallartún og Eiðsvallargata
Málsnúmer 2024110616Lögð fram minnisblöð dagsett í nóvember 2024 varðandi uppsetningu á lyftum við tvö fjölbýlishús í eigu Akureyrarbæjar. Framkvæmdin hefur verið kynnt notendum, auk þess sem styrkur hefur fengist frá Framkvæmdasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Framkvæmdin verður einnig kynnt í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Yfirborðsmerkingar - útboð
Málsnúmer 2021041499Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi nýtingu framlengingarákvæðis á samningi um yfirborðsmerkingar á Akureyri.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins og framlengja samninginn um eitt ár.
Hjólaskýli - kynning
Málsnúmer 2023050622Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi uppsetningu á hjólaskýlum fyrir starfsfólk við Klappir leikskóla, Glerárskóla og Ráðhús Akureyrarbæjar.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Leikskóli í Hagahverfi
Málsnúmer 2023010583Kynning á leikskólanum í Hagahverfi frá Birgi Teitssyni arkitekt frá ARKÍS arkitektum.
Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Malbikunarstöð UM - asfalt
Málsnúmer 2024011659Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi kaup á asfalti/tjöru af Colas á árinu 2025.
Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að semja við Colas um kaup á asfalti fyrir árið 2025 og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að skrifa undir samning þess efnis.
Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2024-2025
Málsnúmer 2024091463Lagt fram minnisblað dagsett 27. janúar 2025 varðandi sölu á eldri tækjum umhverfismiðstöðvar.
Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka hæsta tilboði í hvert tæki.
Caterpillar 163H AWD
16.616.000 kr. Grjótverk ehf.
HAMM DV70TV Valtari
3.112.400 kr. Rúko hf.
Wirtgen W50DC malbiksfræsari
2.850.000 kr. Rúko hf.
Scania T92 malbikshitakassi
4.650.000 kr. Klæðning ehf.Hleðslustöðvar á Akureyri - útboð
Málsnúmer 2025011295Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi drög að staðsetningum fyrir hleðslustöðvar í landi Akureyrarbæjar sem hluti af undirbúningi útboðs um rekstur stöðvanna.