Ungmennaráð - 52
- Kl. 16:00 - 18:30
- Rósenborg
- Fundur nr. 52
Nefndarmenn
- Elsa Bjarney Viktorsdóttir
- Apríl Ýr Kro
- Guðmar Gísli Þrastarson
- Heimir Sigurpáll Árnason
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- París Anna Bergmann Elvarsd.
- Telma Ósk Þórhallsdóttir
Starfsmenn
- Karen Nóadóttirumsjónarmaður ungmennaráðs ritaði fundargerð
- Arnar Már Bjarnasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
- Hafsteinn Þórðarsonforvarna- og félagsmálafulltrúi
Fjárhagsáætlun 2024 - ungmennaráð
Málsnúmer 2024051252Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra kynntu skipurit Akureyrarbæjar sem og fjárhagsáætlunarvinnu sem nú er í gangi. Kynningin var meðal annars liður í undirbúningi fyrir samráðsfund ungmennaráðsins með bæjarstjóra, formanni bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2025-2028 síðar í mánuðinum.
Ungmennaráð þakkar Kristínu og Huldu fyrir kynninguna og gott samtal.
Fræðsla á vegum ungmennaráðs
Málsnúmer 2024051862Hafsteinn, fyrir hönd fræðsluteymis vinnuskólans ræddi kynningu ungmennaráðs fyrir Vinnuskólann í sumar. Farið var yfir fyrirkomulag og verkaskiptingu í kringum kynningarnar. Nánari tímasetningar voru ekki komnar á hreint.
Ungmennaráð tekur vel í verkefnið. París verður ábyrgðaraðili verkefnisins.
Ungmennaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022120502Fundurinn var síðasti formlegi fundurinn fyrir sumarfrí. Rætt var um skýrsluskrif ungmennaráðsins um samantekt á vetrinum líkt og gert var eftir síðasta starfsár.