Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 775
- Kl. 13:00 - 13:15
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 775
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Arnar Ólafsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Skólastígur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020070466Erindi dagsett 14. júlí 2020 frá Valþóri Brynjarssyni þar sem hann fyrir hönd Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um breytingar á 2. og 3. hæð Skólastígs 4 vegna tímabundinnar notkunar sem skólahúsnæði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hafnarstræti 34 - umsókn um niðurrif
Málsnúmer 2020070526Erindi dagsett 15. júlí 2020 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf., kt. 690104-2020, sækir um leyfi fyrir niðurrifi hússins á lóðinni nr. 34 við Hafnarstræti vegna uppbyggingar á lóðinni í samræmi við deiliskipulag.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.
Kjarnagata 51- umsókn um breytingar
Málsnúmer 2019020183Erindi dagsett 16. janúar 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af Kjarnagötu 51. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 8. júní 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.