Bæjarráð - 3664
- Kl. 08:15 -
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3664
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Akureyrarflugvöllur
Málsnúmer 2018010214Kynnt skýrsla um Akureyrarflugvöll dagsett í nóvember 2019.
Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skýrsluhöfundur mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð þakkar fyrir góða skýrslu sem er mikilvægt gagn inn í umræðu um framtíð Akureyrarflugvallar. Athygli vekur að kostnaðartölur sem fram koma í þessari skýrslu eru mun lægri en verið hafa í umræðunni til þessa. Bæjarráð óskar eftir því að AFE hlutist til um að gerð verði úttekt á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að opna aðra gátt inn í landið í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023
Málsnúmer 2019020276Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Ársreikningur 2018 - ósk um viðbótarupplýsingar
Málsnúmer 2019100353Bréf dagsett 28. nóvember 2019 frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þar sem óskað er nánari upplýsinga um fyrirætlan bæjaryfirvalda í rekstri A-hluta sveitarfélagsins. Óskað er eftir að svör berist nefndinni að lokinni umræðu í bæjarstjórn, eigi síðar en 15. janúar nk.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjársýslusviðs að svara eftirlitsnefndinni.
Fylgiskjöl
Búsetusvið - möguleg kaup á fasteign við þjónustukjarna í Hafnarstræti
Málsnúmer 2019110309Liður 6 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 20. nóvember 2019:
Guðrún Guðmundsdóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lagði fram minnisblað um kaup á íbúð í nálægð við þjónustukjarna í Hafnarstræti 28-30.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir tillögu um kaup á íbúð og vísar erindinu til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna málið áfram.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019010208Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 14. nóvember 2019.
Bæjarráð vísar lið 1 til fræðsluráðs og lið 3 til frístundaráðs. Liður 2 er lagður fram til kynningar.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019010208Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 28. nóvember 2019.
Bæjarráð vísar lið 1 til samfélagssviðs, liðum 2 og 4 til umhverfis- og mannvirkjasviðs og lið 3 til skipulagssviðs. Liður 5 er lagður fram til kynningar.
Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir 2010-2020
Málsnúmer 2010070098Lögð fram fundargerð 34. fundar hverfisráðs Grímseyjar dagsett 27. nóvember 2019.
Fundargerðina má finna á netslóðinni: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/grimsey/fundargerdirBæjarráð vísar fundargerðinni til umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019030011Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Hafnasamlags Norðurlands bs. dagsett 27. nóvember 2019.
Fundargerðina er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.port.is/isl/index.php?pid=167Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál
Málsnúmer 2019110529Lagt fram til kynningar erindi dagsett 29. nóvember 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál 2019.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 9. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0524.html