Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 891
- Kl. 13:00 - 13:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 891
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Baldursnes 3 - umsókn um skilti
Málsnúmer 2022110841Erindi dagsett 17. nóvember 2022 þar sem Sigríður Magnúsdóttir fyrir hönd Atlantsolíu ehf. sækir um leyfi fyrir skilti við Baldursnes 3. Skipta á út eldra skilti fyrir nýtt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigríði Magnúsdóttur.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Hrafnagilsstræti 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022110605Erindi dagsett 14. nóvember 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 2 við Hrafnagilsstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Austurbyggð - umsókn um skilti
Málsnúmer 2022110535Erindi dagsett 11. nóvember 2022 þar sem Sigrún Harpa Sigurðardóttir f.h. Heilsuverndar ehf. sækir um leyfi fyrir skilti á lóð hjúkrunarheimilis við Austurbyggð 17. Meðfylgjandi eru skýringarmyndir og greinargerð.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.