Bæjarstjórn - 3542
- Kl. 16:00 - 16:30
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3542
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnason1. varaforseti
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltason
- Gunnar Már Gunnarsson
- Andri Teitsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Olga Margrét Kristínard. Cilialögfræðingur
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
Sérstakur húsnæðisstuðningur 2023
Málsnúmer 2023110147Liður 3 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 14. febrúar 2024:
Lagðar fram til samþykktar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning með breytingum í samræmi við það sem samþykkt var í velferðarráði 24. janúar sl.
Velferðarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar.
Hulda Elma Eysteinsdóttir kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning með 11 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl
Bifreiðastæðasjóður - endurskoðun á samþykktum
Málsnúmer 2024011020Liður 1 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 22. febrúar 2024:
Liður 2 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 6. febrúar 2024:
Lögð fram til samþykktar Samþykkt um bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samþykktina og vísar henni til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar samþykktinni til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Hlynur Jóhannsson kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða Samþykkt um bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar með 11 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl
Austursíða 4 - umsókn um breytingu á aðalskipulagi
Málsnúmer 2023090795Liður 3 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 28. febrúar 2024:
Lögð fram tillaga að lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030 sem nær til svæðis við Austursíðu, til samræmis við bókun skipulagsráðs frá 31. janúar sl.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við lýsinguna. Ráðið leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki lýsinguna og að hún verði kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Andri Teitsson kynnti.
Til máls tóku Jón Hjaltason, Andri Teitsson, Hilda Jana Gísladóttir og Sunna Hlín Jóhannesdóttir.Bæjarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna með 9 atkvæðum og að hún verði kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista sitja hjá.Fylgiskjöl
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2023010626Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.