Umhverfis- og mannvirkjaráð - 145
- Kl. 08:15 - 10:15
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 145
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Georg Fannar Haraldssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Erindi til sveitarfélaga varðandi lausagöngu búfjár
Málsnúmer 2023070305Lagt fram bréf dagsett 6. júlí 2023 frá Bændasamtökum Íslands varðandi lausagöngu búfjár.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur starfsmönnum umhverfis- og mannvirkjasviðs að leggja fram tillögu að endurskoðaðri samþykkt um búfjárhald í lögsagnarumdæmi Akureyrar.
UMSA - endurnýjun bifreiða og tækja
Málsnúmer 2022090104Lagt fram minnisblað dagsett 1. september 2023 varðandi kaup á bifreið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að keyptur verði rafmagnsbíll fyrir allt að kr. 5.000.000. Fjárfestingin verði tekin af liðnum stofnbúnaður fyrir aðalsjóð og bifreiðin eignfærð í fasteignum.
Fasteignir - viðhald 2023
Málsnúmer 2023080471Lagt fram minnisblað dagsett 25. ágúst 2023 vegna þeirra stóru viðhaldsverkefna sem hafa komið upp og stöðu þeirra.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir viðauka til bæjarráðs að upphæð kr. 150.000.000 á liðinn viðhald fasteigna Akureyrarbæjar vegna stórra verkefna í ófyrirséðu viðhaldi sem komu upp á þessu ári og aðlögunar skólahúsnæðis í tengslum við fjölgun leikskólaplássa.
Fjárfestingaráætlun 2024
Málsnúmer 2023050623Lögð fram til umræðu drög að fjárfestingaráætlun vegna áranna 2024-2027 og stöðu verkefna á árinu 2023.
Fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 2023081139Lagðar fram til umræðu gjaldskrár umhverfis- og mannvirkjasviðs.