Bæjarráð - 3621
- Kl. 08:15 - 10:25
- Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3621
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirforstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Samningar um öryggisgæslu 2018
Málsnúmer 2018010147Liður 2 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 5. desember 2018:
Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið og lagði fram til umræðu og afgreiðslu niðurstöður samningaviðræðna um drög að samningi ásamt fylgigögnum, við velferðarráðuneyti og Greiningarstöð ríkisins um rekstur öryggisgæslu.
Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð staðfestir samninginn. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að hefja viðræður við ríkið um framtíð öryggisvistunar.
Hlíðarfjall - uppbygging heilsárs starfsemi
Málsnúmer 2018020052Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 8. nóvember 2018.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs og Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar mættu á fund bæjarráðs og kynntu minnisblað sitt dagsett 6. desember 2018.Umboð til kjarasamningsgerðar
Málsnúmer 2018120023Lögð fram drög að samkomulagi um kjarasamningsumboð Akureyrarbæjar til SNS f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna samninga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélaga.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlögð drög að umboði og felur bæjarstjóra að ganga frá því f.h. bæjarins.
Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2018
Málsnúmer 2018020337Lagt fram til kynningar yfirlit um þróun launakostnaðar árin 2011-2018 skipt niður á málaflokka.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Aflamark Byggðastofnunar - beiðni um umsögn
Málsnúmer 2018120020Erindi dagsett 3. desember 2018 frá Aðalsteini Þorsteinssyni f.h. Byggðastofnunar þar sem beðið er um umsögn bæjarstjórnar Akureyrar um innkomnar umsóknir um Aflamark Byggðastofnunar vegna Grímseyjar. Með erindinu fylgja umsóknirnar sem vísað er til ásamt matsblaði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda umsögn til Byggðastofnunar.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2018
Málsnúmer 2018080202Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 29. nóvember 2018.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Markaðsstofa Norðurlands - beiðni um endurnýjun samnings til ársloka 2021
Málsnúmer 2018090388Liður 5 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 6. desember 2018:
Lagður fram til samþykktar endurnýjaður samningur við Markaðsstofu Norðurlands.
Finnur Sigurðsson V-lista lagði fram eftirfarandi tillögu:
Legg til að upphæð samningsins verði lækkuð um 1 milljón til að nota í kynningarmál sem beint er sérstaklega að þjónustu á vegum Akureyrarbæjar.
Tillagan er felld með atkvæðum Hildu Jönu Gísladóttur S-lista, Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur L-lista, Sigfúsar Karlssonar B-lista og Evu Hrundar Einarsdóttur D lista.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn með atkvæðum Hildu Jönu Gísladóttur S-lista, Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur L-lista, Sigfúsar Karlssonar B-lista og Evu Hrundar Einarsdóttur D lista og vísar honum til endanlegrar samþykktar hjá bæjarráði.
Finnur Sigurðsson V-lista greiðir atkvæði á móti.Bæjarráð staðfestir ákvörðun stjórnar Akureyrarstofu.
FabLab Akureyri
Málsnúmer 2014090260Liður 3 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 29. nóvember 2018:
Lögð fram til samþykktar drög að endurnýjuðum samningi um stuðning Akureyrarbæjar við rekstur FabLab-smiðjunnar á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.Bæjarráð staðfestir ákvörðun stjórnar Akureyrarstofu.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing
Málsnúmer 2014030109Liður 5 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 7. desember 2018:
Aðgerðaáætlun vegna innleiðingar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna lögð fram til samþykktar.
Alfa Aradóttir deildarstjóri forvarna- og frístundamála sat fundinn undir þessum lið.
Frístundaráð samþykkir aðgerðaáætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarráði.Bæjarráð frestar afgreiðslu og óskar eftir að deildarstjóri forvarna- og frístundamála mæti á næsta fund bæjarráðs.
Samningur Akureyrarbæjar við KFUM og KFUK 2018 - 2020
Málsnúmer 2018110044Liður 6 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 7. desember 2018:
Samningur við KFUM og KFUK lagður fram til samþykktar.
Frístundaráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs til endanlegrar samþykktar.Bæjarráð staðfestir ákvörðun frístundaráðs.
Skákfélag Akureyrar - endurnýjun á samningi
Málsnúmer 2015060184Liður 7 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 7. desember 2018:
Samningur við Skákfélag Akureyrar lagður fram til samþykktar.
Frístundaráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs til endanlegrar samþykktar.Bæjarráð staðfestir ákvörðun frístundaráðs.
Skátafélagið Klakkur - styrktarsamningur
Málsnúmer 2016110061Liður 8 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 7. desember 2018:
Samningur við Skátafélagið Klakk lagður fram til samþykktar.
Frístundaráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs til endanlegrar samþykktar.Bæjarráð staðfestir ákvörðun frístundaráðs.
Neytendasamtökin - styrkbeiðni fyrir árið 2019
Málsnúmer 2018120012Erindi dagsett 27. nóvember 2018 frá Breka Karlssyni fyrir hönd Neytendasamtakanna þar sem sótt erum um 300.000 kr. styrk til reksturs samtakanna.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2018
Málsnúmer 2018030432Lögð fram til kynningar fundargerð 865. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 30. nóvember 2018.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspxTillaga til þingsályktunar um áætlun fyrir árin 2019-2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess, 409. mál 2018
Málsnúmer 2018120074Lagt fram til kynningar erindi dagsett 7. desember 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um áætlun fyrir árin 2019-2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess, 409. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0550.html