Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 966
- Kl. 10:00 - 10:50
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 966
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
Langimói 2 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2024041495Erindi dagsett 30. apríl 2024 þar sem Norðurorka hf. tilkynnir byggingu dreifistöðvar rafveitu á lóð nr. 2 við Langamóa.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Njarðarnes 3-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024020601Erindi dagsett 12. febrúar 2024 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Regins atvinnuhúsnæðis ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 3-7 við Njarðarnes. Innkomin ný gögn 30. apríl 2024 eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hrísmói 1-9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024041175Erindi dagsett 22. apríl 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson, fyrir hönd Kötlu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir 5 íbúða raðhúsi á lóðum nr. 1-9 við Hrísmóa. Innkomin gögn eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Sunnuhlíð 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024040438Erindi dagsett 9. apríl 2024 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Aðalsteins Guðmundssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir stakstæðri geymslu á baklóð húss nr. 9 við Sunnuhlíð. Innkomin ný gögn 2. maí 2024 eftir Þröst Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kringlumýri 21 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2024040787Erindi dagsett 16. apríl 2024 þar sem Leifur Hjörleifsson sækir um leyfi fyrir stækkun á bílastæði við hús nr. 21 við Kringlumýri.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.
Eyrarlandsvegur 12 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2024050322Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Gísli Guðmann sækir um úrtak úr kantstein við hús nr. 12 við Eyrarlandsveg.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Matthíasarhagi 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024040571Erindi dagsett 11. apríl 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson f.h. Daða Jónssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum á lóð nr. 2 við Matthíasarhaga. Innkomin ný gögn 8. maí 2024 eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.