Umhverfis- og mannvirkjaráð - 118
- Kl. 08:15 - 09:25
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 118
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Rafskútuleiga - fyrirspurn
Málsnúmer 2022020224Liður 9 í fundargerð skipulagsráðs 9. mars 2022:
Erindi Valdemars Viðarssonar dagsett 3. febrúar 2022 fyrir hönd ATOM 22 ehf. þar sem óskað er eftir leyfi fyrir stöðvalausri rafskútuleigu á Akureyri.
Erindið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 9. febrúar sl. en afgreiðslu þess var frestað.
Skipulagsráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og leggur til að gerður verði þjónustusamningur við umsækjanda um stöðvalausa rafskútuleigu.
Er afgreiðsla erindisins með fyrirvara um jákvæða umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs.Umhverfis- og mannvirkjaráð gerir engar athugasemdir við erindið, enda verði þjónustusamningurinn sambærilegur samningi við aðra rafskútuleigu.
LED-væðing götulýsingar - staða og framhald
Málsnúmer 2022042019Lagt fram minnisblað dagsett 7. apríl 2022 varðandi LED-væðingu götulýsingar á Akureyri.
Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna og stíga sat fundinn undir þessum lið.GLSK - Glerárskóli - endurbætur A-álmu
Málsnúmer 2022020337Lagt fram minnisblað dagsett 7. apríl 2022 varðandi fyrirhugað útboð.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Oddeyrarskóli - lóð
Málsnúmer 2022042022Lagt fram minnisblað dagsett 7. apríl 2022 varðandi fyrirhugað útboð.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds og Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sátu fundinn undir þessum lið.