Bæjarráð - 3654
- Kl. 08:15 - 11:38
- Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3654
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirvaraformaður
- Hilda Jana Gísladóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Hlíðarfjall - uppbygging heilsárs starfsemi
Málsnúmer 2018020052Rætt um Hlíðarhrygg ehf. og framtíð félagsins.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir kaup á skýrslu um undirbúning fyrir alhliða starfsemi í Hlíðarfjalli sem unnin var af Hlíðarhrygg ehf. og þakkar þeim samstarfið. Bæjarráð felur jafnframt sviðsstjóra fjársýslusviðs og sviðsstjóra samfélagssviðs að útbúa viðauka vegna málsins.
Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2019
Málsnúmer 2019020370Lögð fram til kynningar mánaðarskýrsla um stöðugildi, yfirvinnu og fleira fyrir ágúst 2019.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Stjórnsýslusvið - starfsáætlun 2020
Málsnúmer 2019050586Lögð fram drög að starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2020.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Meirihluti bæjarráðs samþykkir starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2020.
Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu.Fjársýslusvið - starfsáætlun 2020
Málsnúmer 2019060415Lögð fram drög að starfsáætlun fjársýslusviðs fyrir árið 2020.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Meirihluti bæjarráðs samþykkir starfsáætlun fjársýslusviðs fyrir árið 2020.
Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu.Fjárhagsáætlun 2020 - 121 - stjórnsýslusvið og fjársýslusvið
Málsnúmer 2019090024Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 121.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð vísar framlögðum drögum að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 121 til frekari vinnslu við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki
Málsnúmer 2018050147Lagður fram viðauki 7.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagðan viðauka 7 um aukin rekstrarútgjöld samtals að upphæð 186,3 milljónir króna og lækkun framkvæmdaáætlunar að upphæð 47 milljónir króna og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista situr hjá við afgreiðslu.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023
Málsnúmer 2019020276Unnið að gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Strætó - jöfnunarstoppistöð
Málsnúmer 2019020236Liður 2 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 13. september 2019:
Lögð fram greinargerð verkefnahóps um staðsetningu á miðbæjarbiðstöð Strætisvagna Akureyrar dagsett 5. september 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar greinargerðinni til umræðu í bæjarráði.Bæjarráð leggur áherslu á að fundin verði bráðabirgðalausn sem fyrst á nýjum stað.
Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi kl. 11:20.
Fylgiskjöl
Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019030011Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasamlags Norðurlands bs.
Fundargerð 242. fundar dagsett 20. ágúst 2019
Fundargerð 243. fundar dagsett 18. september 2019
Fundargerðirnar er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.port.is/isl/index.php?pid=167Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2019
Málsnúmer 2019090463Erindi dagsett 18. september 2019, móttekið 24. september 2019, frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 2. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn verður í sal H-1 sem er staðsettur á jarðhæð hótelsins og hefst kl. 16:00.
Bæjarráð felur Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fylgiskjöl