Stjórn Akureyrarstofu - 253
- Kl. 17:00 - 18:30
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 253
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Minjasafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings
Málsnúmer 2016040100Til umræðu þjónustusamningur við Minjasafnið á Akureyri.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir viðauka að upphæð kr. 7.500.000 sem komi til viðbótar við framlög til safnsins á yfirstandandi ári, til að koma til móts við þróun framlaga til safnsins síðustu ár sem ekki hafa haldist í hendur við verðlagsbreytingar. Jafnframt í framhaldinu verði gengið frá nýjum samningi þar sem tekið verði tillit til verðlagsbreytinga.
17. júní hátíðarhöld
Málsnúmer 2015020072Erindi frá Skátafélaginu Klakki vegna samnings um umsjón og framkvæmd dagskrár á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2018.
Deildarstjóra Akureyrarstofu falið að ljúka samningaviðræðum og leggja endanlegan samning fyrir á næsta fundi.
NOVU 2018 - norrænt vinabæjamót ungmenna í Västerås
Málsnúmer 2018040349Lagðar fram til kynningar upplýsingar um næsta norræna vinabæjamót sem haldið verður í Västerås í Svíþjóð dagana 1.- 6. júlí nk.
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Óskað er eftir umsögn stjórnar Akureyrarstofu á velferðarstefnu Akureyrarbæjar
Stjórn Akureyrarstofu felur sviðsstjóra að koma á framfæri ábendingum sem ræddar voru á fundinum.
Íbúakort
Málsnúmer 2017090124Lögð fram til kynningar greinargerð frá Ozio ehf vegna vinnu við innleiðingu á íbúakorti.