Umhverfisnefnd - 110
24.11.2015
Hlusta
- Kl. 10:00 - 11:50
- Kaffistofa framkvæmdadeild
- Fundur nr. 110
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Kristinn Frímann Árnason D-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hans stað.[line]
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Málsnúmer 2015040029Tekið fyrir erindi dagsett 23. september 2015 frá verkefnisstjórn um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2015-2026, þar sem óskað er eftir samþykki sveitarstjórnar á áætluninni.
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við áætlunina í heild sinni. Nefndin hvetur hinsvegar til þess að ákvarðanir verði teknar sem varða landið í heild s.s. staðsetningu brennslustöðva fyrir sóttnæman úrgang.
Umhverfisnefnd vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.Langtímaáætlun - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2013040051Langtímaáætlun í málaflokkum umhverfisnefndar rædd og verður framhaldið á næsta fundi.
Úrgangsmál - starfshópur
Málsnúmer 2014110224Farið yfir stöðuna í fræðslu- og kynningarmálum ásamt fyrirhuguðum breytingum á flokkun endurvinnsluefnis í Hrísey.