Framkvæmdaráð - 229
- Kl. 09:13 - 12:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 229
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Sigríður María Hammer
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna- fráveitu og hreinlætismála
- Bergur Þorri Benjamínssonfundarritari
Starfsáætlun framkvæmdaráðs - 2011-2014
Málsnúmer 2011010021Bæjartæknifræðingur, Helgi Már Pálsson, fór yfir framkvæmdaáætlun áranna 2011-2014.

Dráttarvél - örútboð
Málsnúmer 2011020030Forstöðumaður umhverfismála, Jón Birgir Gunnlaugsson, kynnti niðurstöður útboðs á dráttarvélum til notkunar við grasslátt og snjómokstur.

Samþykkt að taka hagstæðasta tilboði í dráttarvélina frá Þór hf.

Heildarkostnaður kr. 25 m.kr. vegna tækjakaupa fyrir grasslátt og snjómokstur greiðist af þegar samþykktri upphæð í eignasjóði.

Þingvallastræti - endurhönnun götu
Málsnúmer 2010060058Kristinn Magnússon frá Verkfræðistofu Norðurlands ehf og Halldór Jóhannsson frá Teiknum á lofti kynntu tillögur að breytingum á Þingvallastræti sem unnar voru á árinu 2007 af Teiknum á lofti og Verkfræðistofu Norðurlands ehf.

Framkvæmdaráð þakkar Kristni og Halldóri góða kynningu.

Framkvæmdaráð samþykkir að bifreiðastæði verði aðeins að sunnanverðu frá Þórunnarstræti að Mýrarvegi og að núverandi áfangi geri ráð fyrir óbreyttum gatnamótum við Mýrarveg.

Slökkvilið Akureyrar - ýmis málefni
Málsnúmer 2010050026Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn og fór yfir samstarfssaming slökkviliða við Eyjafjörð.

Stoppistöðvar Strætisvagna Akureyrar - aðgengi og aðstaða fyrir farþega.
Málsnúmer 2011030008Í bæjarráði þann 24. febrúar sl. óskaði Ólafur Jónsson D-lista eftir því undir öðrum málum að gerð yrði úttekt á öllum stoppistöðvum SVA m.t.t. aðgengis og aðstöðu fyrir farþega.

Unnið hefur verið að því undanfarin ár að laga stoppistöðvar strætisvagnanna. meðal annars með því að fjölga biðskýlum. Sú vinna heldur áfram og sér framkvæmdaráð ekki ástæðu til að gera sérstaka úttekt á aðgengi og aðstöðu að stoppistöðvum.

Önnur mál í framkvæmdaráði
Málsnúmer 2011020089Njáll Trausti Friðbertsson D-lista spurðist fyrir um hvernig innleiðing og fræðsla gengi varðandi sorpmálin.