Velferðarráð - 1372
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1372
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Viðauki vegna stuðnings- og stoðþjónustu
Málsnúmer 2023090453Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun stuðningsþjónustu og stoðþjónustu um upphæð kr. 29.428.000 vegna ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu og Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður í stuðningsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Reglur um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Málsnúmer 2023090450Lögð fram drög að reglum um þjónustu við börn og barnafjölskyldur.
Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð vísar drögum að reglum til ungmennaráðs, samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og fræðslu- og lýðheilsuráðs til umsagnar. Drögin eru einnig send Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppi, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppi til kynningar.
Reglur um stuðningsfjölskyldur
Málsnúmer 2023090452Lögð fram drög að reglum um stuðningsfjölskyldur.
Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð vísar drögum að reglum um stuðningsfjölskyldur til ungmennaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til umsagnar. Drögin eru einnig send Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppi, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppi til kynningar.
Reglur um skammtímadvöl og frístundaþjónustu
Málsnúmer 2023090449Lögð fram drög að reglum um skammtímadvöl og frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni.
Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Anna Einarsdóttir forstöðumaður skammtímaþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð vísar drögum að reglum um stuðningsfjölskyldur til ungmennaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til umsagnar. Drögin eru einnig send Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppi, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppi til kynningar.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2023090345Lagðar fram til kynningar endurskoðaðar reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar.
Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð vísar drögum að reglum um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar til öldungaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til umsagnar.
Samningur um þjónustu við fatlað fólk í Eyjafirði
Málsnúmer 2023090320Lagður fram til kynningar samningur Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps um sameiginlegt þjónustsvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk. Drögin hafa nú þegar verið send til nágrannasveitarfélagana til umsagnar.
Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur sat fundin undir þessum lið.Velferðarráð vísar drögum að samningnum um sameiginlegt þjónustusvæði í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks til umsagnar.
NPA - tímagjald 2023
Málsnúmer 2022090640Lagt fram minnisblað dagsett 13. september 2023 til samþykktar með tillögu um hækkun tímagjalds í Notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) fyrir árið 2023.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir tillögu um hækkun tímagjalds í Notendastýrðri persónulegri aðstoð fyrir árið 2023.
Viðauki vegna NPA 2023
Málsnúmer 2023070203Lögð fram til samþykktar beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun Notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) um upphæð kr. 32,8 milljónir vegna ársins 2023.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti beiðni um viðauka við fjárhagshagsáætlun og vísar beiðninni áfram til bæjarráðs.
Starfsáætlun velferðarsviðs 2023
Málsnúmer 2023011135Lögð fram drög að starfsáætlun velferðarsviðs 2023-2024.
Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 2023061032Lögð fram til kynningar fyrstu drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2024.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Staða mála varðandi heimsendan mat
Málsnúmer 2023090302Elsa María Guðmundsdóttir S-lista óskaði eftir umæðu um heimsendan mat frá velferðarsviði.
Í ljósi fréttar sem birtist nú í vor, þar sem rannsókn leiddi í ljós miklar líkur á vannæringu eldri borgara sem fá heimsendan mat. Þá hef ég áhuga á að fá umræðu um stöðu mála varðandi heimsenda matinn. Hvernig er eftirliti háttað varðandi samsetningu og næringarinnihald?
Fréttin birtist 22. júní í Vikublaðinu undir yfirskriftinni:" Ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu".
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.Elsa María Guðmundsdóttir S-lista og Snæbjörn Guðjónsson V-lista bóka eftirfarandi:
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að þrátt fyrir ætlaða hollustu og næringarinnihald matarbakkanna, þá þyrfti að fylgjast með næringarástandi þeirra eldri borgara sem nota þessa þjónustu Akureyrarbæjar. Slæmt næringarástand hefur í för með sér ýmsar afleiðingar sem geta hamlað lífsgæðum eldri borgara. Áhugavert væri að skoða aðra möguleika, t.d. að fólk ætti kost á að koma í matsalinn í Hlíð (Heilsuvernd) og borða hann á staðnum.