Bæjarráð - 3666
- Kl. 08:15 - 10:01
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3666
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Félagsdómur- eingreiðslur tímavinnufólks
Málsnúmer 2019120117Kynntur úrskurður Félagsdóms í máli nr. 14/2019.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2019
Málsnúmer 2019040448Lagt fram til kynningar tíu mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Öldungaráð - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019050503Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar öldungaráðs dagsett 9. desember 2019.
Fundargerðir öldungaráðs eru aðgengilegar á eftirfarandi slóð: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir/oldungarad-localViðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019010208Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 12. desember 2019.
Bæjarráð vísar lið 1 til umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Sameining almannavarnanefnda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu
Málsnúmer 2019100213Rætt um hugmyndir um sameiningu almannavarnanefnda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu.
Málið var áður á dagskrá ráðsins 24. október sl. og var afgreiðslu þá frestað.Bæjarráð samþykkir drög að samkomulagi um skipan sameiginlegrar almannavarnanefndar í umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu.
Aðgerðahópur um uppbyggingu Akureyrarflugvallar - tilnefning fulltrúa
Málsnúmer 2019120254Erindi dagsett 18. desember 2019 þar sem Ragnheiður Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kynnir viljayfirlýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um frekari uppbyggingu á Akureyrarflugvelli sem hliði inn til landsins í þágu svæðisins og íslenskrar ferðaþjónustu.
Samkvæmt yfirlýsingunni er aðgerðahópi meðal annars falið að gera tillögur að endurbótum á flugstöðinni. Í hópnum eiga sæti fulltrúar ráðuneytanna tveggja, Akureyrarbæjar, Eyþings, ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og Isavia. Nánari lýsing á verkefnum hópsins er í hjálagðri viljayfirlýsingu.
Óskað er eftir að Akureyrarbær tilnefni fulltrúa í aðgerðahópinn. Þar sem hópurinn á að ljúka störfum fyrir 31. mars 2020 þarf tilnefningin að berast sem allra fyrst.Bæjarráð tilnefnir Guðmund Baldvin Guðmundsson sem fulltrúa Akureyrarbæjar í aðgerðahópnum.
Fylgiskjöl
Alþjóðleg ráðstefna um rannsóknir á plöntusýklum - beiðni um stuðning
Málsnúmer 2019120087Erindi dagsett 5. desember 2019 þar sem Oddur Vilhelmsson og M. Auður Sigurbjörnsdóttir f.h. Háskólans á Akureyri óska eftir styrk að upphæð 250.000 krónur vegna ráðstefnunnar Psyringae 2020 sem haldin verður á Akureyri 15.-19. júní 2020.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og felur bæjarstjóra að svara bréfriturum.
Fylgiskjöl
Tillaga til þingsályktunar um Akureyri sem miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi, 182. mál
Málsnúmer 2019120122Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. desember 2019 frá utanríkismálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um Akureyri sem miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi, 182. mál 2019.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0183.htmlBæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn vegna tillögunnar.
Tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034, 435. mál
Málsnúmer 2019120118Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. desember 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034, 435. mál 2019.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjölin er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0598.html og https://www.althingi.is/altext/150/s/0599.htmlBæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa umsögn vegna málsins.
Drög að frumvarpi til nýrra fjarskiptalaga í samráðsgátt
Málsnúmer 2019120131Lögð fram drög að frumvarpi til nýrra fjarskiptalaga sem hafa verið birt í Samráðsgátt. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drögin, eigi síðar en 6. janúar nk.
Drögin má finna á slóðinni: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=2562Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna umsögn um málið.