Bæjarráð - 3237
- Kl. 09:00 - 11:40
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3237
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Halla Björk Reynisdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Ólafur Jónsson
- Hermann Jón Tómassonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagssýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2011
Málsnúmer 2010070048Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð samþykkir framlagðan fjárhagsramma fyrir aðalsjóð.

Þingvallastræti 23 - ráðstöfun fasteignarinnar
Málsnúmer 2010010172Tekið fyrir að nýju, bæjarráð fól fjármálastjóra að vinna áfram að málinu á fundi sínum þann 26. ágúst sl.
Sorpmál - framtíðarsýn
Málsnúmer 2009010228Tekið fyrir að nýju, bæjarráð frestaði afgreiðslu 26. ágúst sl. \nRætt um mismunandi leiðir í sorphirðu í tengslum við útboð.\n

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Viðjulundur 2 - skaðabótakrafa
Málsnúmer 2010080036Skaðabótakrafa vegna synjunar Akureyrarbæjar um að breyta deiliskipulagi lóðar í Viðjulundi.\nInga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið og fór yfir málið.

Bæjarráð hafnar skaðabótakröfunni og felur bæjarlögmanni að svara erindinu.

Hrísey - ferjugjald
Málsnúmer 2010080087Erindi dags. 25. ágúst 2010 frá Michael Jóni Clarke og Sigurlínu Jónsdóttur þar sem þau vekja athygli á mikilli hækkun ferjugjalda til Hríseyjar og einnig vilja þau koma á framfæri óánægju sinni með að aðeins þeir sem lögheimili eiga í Hrísey fái ókeypis ferjumiða og telja að allir húseigendur í Hrísey eigi að njóta sömu kjara burtséð frá því hvar þeir eiga lögheimili.

Bæjarráð gerir athugasemdir við þær miklu hækkanir sem orðið hafa á gjaldskrá Eyfars ehf vegna ferða til og frá Hrísey og telur þær langt umfram hækkun á verðlagi.

Bæjarráð vísar erindinu að öðru leyti til gerðar fjárhagsáætlunar.