Umhverfis- og mannvirkjaráð - 13
- Kl. 08:15 - 10:15
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 13
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Jón Orri Guðjónsson
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður tæknideildar
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
SVA - sala auglýsinga á strætisvagna í eigu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017020079Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar mætti á fundinn og fór yfir drög að útboðsgögnum vegna auglýsingasölu á strætisvagna dagsett 14. júní 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra og forstöðumanni Umhverfismiðstöðvar að klára útboðsgögnin miðað við umræður á fundinum.
Molta - pappírstætari
Málsnúmer 2017010100Lagður fram samningur við Moltu ehf um móttöku á pappír í grenndarstöðvum og kaup á pappírstætara.
Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista á því athygli að hún teldi sig vanhæfa að fjalla um þennan lið.
Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir umhverfis- og mannvirkjaráð og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.
Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Eiríkur Jónsson varaformaður tók við stjórn fundarins í fjarveru formanns.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn.
Aðalstræti 4 - bílastæði bílastæðasjóðs
Málsnúmer 2017060085Lagt fram minnisblað dagsett 13. júní 2017 um frágang á almennum bílastæðum fyrir framan Aðalstræti 4.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í framkvæmdina þar sem kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins.
Jón Orri Guðjónsson D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins og óskar bókað:
Á þessum stað færi mun betur á því að helluleggja bílastæðin en að malbika þau.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráð óskar bókað:
Ekki er talið ráðlegt að helluleggja stæðin þar sem kostnaður við það er um fjórfalt meiri. Almennt eru almenningsbílastæði malbikuð í bæjarlandinu.Naustatjörn - bílastæði
Málsnúmer 2017060086Lagt fram minnisblað dagsett 13. júní 2017 vegna fjölgunar bílastæða við leikskólann Naustatjörn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í framkvæmdina þar sem kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins.
Giljaskóli - umferðaröryggi
Málsnúmer 2016120149Lagðar fram til kynningar tillögur að breytingum á innkeyrslum við Giljaskóla ásamt frumkostnaðaráætlun dagsettri 14. júní 2017.
Naustaskóli 6. áfangi - lóð
Málsnúmer 2017020140Á síðasta fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs var óskað eftir umsögn fræðsluráðs vegna frágangs lóðar sunnan Naustaskóla. Fræðsluráð tók málið fyrir á fundi þann 12. júní og gerði eftirfarandi bókun:
Fræðsluráð fagnar framlögðum teikningum á lóð við Naustaskóla og að framkvæmdir séu nú hafnar.
Fræðsluráð óskar eftir 10 milljóna króna aukafjárveitingu á árinu 2017 til að hægt sé að ljúka fyrstu þremur áföngum samkvæmt teikningu.
Þá leggur fræðsluráð áherslu á að gert verði ráð fyrir síðasta áfanga lóðarinnar við gerð fjárhagsáætlunar árið 2018.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir auka fjárveitingu að upphæð 10 milljónir króna þar sem hún rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins og að verkið verði boðið út.
ÖA - stefna og starfsemi
Málsnúmer 2013010214Lögð fram beiðni frá velferðarráði um skipun fulltrúa frá umhverfis- og mannvirkjasviði í starfshóp um viðhalds- og endurbætur á húsnæði ÖA í Austurbyggð sem skila á drögum að viðhalds- og endurbótaáæltun í byrjun september 2017.
Afgreiðslu frestað.
Slökkvilið - beiðni um kaup á bílum
Málsnúmer 2017040039Lagt fram minnisblað dagsett 13. júní 2017 vegna kaupanna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin samkvæmt framlögðum gögnum.
Glerárskóli - breytingar vegna 5 ára deildar
Málsnúmer 2017060090Lagðar fram tvær beiðnir, annars vegar frá fræðsluráði um fjárveitingu að upphæð 15 milljónir króna til að gera leiksvæði á lóð Glerárskóla, hins vegar frá bæjarráði að upphæð 4 milljónir króna vegna endurbóta innanhúss fyrir 5 ára deild sem taka á til starfa í skólanum í byrjun ágúst 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fjárveitingu að upphæð 19 milljónir króna í verkefnið þar sem kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins.
Verkfundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010343Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Bygging íbúða fyrir fatlaða: 10. fundur verkefnisliðs dagsettur 16. maí 2017.
Listasafn: 2. og 3. verkfundur dagsettir 31. maí og 16. júní 2017.
Nökkvi farg: 3. verkfundur dagsettur 17. maí 2017.
Rangárvallarstígur: 3.- 5. verkfundur dagsettir 9., 16. og 23. maí 2017.
Sundlaug Akureyrar: 14. verkfundur dagsettur 7. júní 2017.