Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 1
- Kl. 13:30 - 14:30
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Bergur Þorri Benjamínssonformaður
- Helgi Snæbjarnarson
- Jón Heiðar Jónsson
- Lilja Guðmundsdóttir
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Umferðarljós - hljóðljós
Málsnúmer 2012060053Gerð hefur verið fyrirspurn varðandi hljóðljós (umferðarljós) hérna á Akureyri og hvort ekki væri hægt að fjölga þeim. Í dag eru bara tvö slík ljós með tiltölulega stuttu millibili í Þingvallastrætinu og eitt á Glerárgötunni. Bent er á að t.d. væri heppilegt að hafa ljós á Glerárgötunni á móts við Glerártorg og ef til vill fleiri stöðum. Fyrirspurnin er sett fram þar sem því miður hefur ungu sjónskertu og blindu fólki fjölgað hérna á Akureyri upp á síðkastið.

Samstarfsnefndin beinir þeirri ósk til framkvæmdadeildar að umferðar- og gangbrautarljósum með hljóðmerkjum verði fjölgað í bænum þar sem reynsla af þeim sem fyrir eru er jákvæð.

Umhverfisátak
Málsnúmer 2012080082Tekin fyrir ósk frá formanni nefndarinnar um nauðsyn þess að fjölga göngustígum við strætisvagnastöðvar sem oft er slæmt aðgengi að.

Samstarfsnefndin frestar málinu og óskar eftir nánari skilgreiningu á verkefninu og hvaða staði er um að ræða.

Sundlaugar á Akureyri - aðgengi fatlaðra
Málsnúmer 2012070104Rætt um aðgengi að þjálfunarpotti í íþróttamiðstöð Giljaskóla.

Samstarfsnefndin frestar málinu.

Strætisvagnar - hlutverk
Málsnúmer 2012090074

Samstarfsnefndin beinir þeirri beiðni til framkvæmdaráðs að allir vagnar Strætisvagna Akureyrar verði útbúnir þannig að þeir verði aðgengilegir öllum og upplýsingar um aðgengi að vögnunum inni á heimasíðu sveitarfélagsins verði jafnframt uppfærðar.