Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 562
- Kl. 14:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 562
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 69 - framkvæmdafrestur
Málsnúmer 2015020075Erindi móttekið 2. nóvember 2015 þar sem Haraldur Árnason f.h. R.A. Fasteignir ehf., kt. 460612-1280, sækir um framkvæmdafrest á lóðinni Hafnarstræti 69 til 1. apríl 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Síðuskóli - umsókn um byggingarleyfi fyrir grillskýli
Málsnúmer 2015100133Erindi dagsett 20. október 2015 þar sem Jón Birgir Gunnlaugsson f.h. hverfisnefndar Síðuhverfis og framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um byggingarleyfi fyrir grillskýli á lóð vestan Síðuskóla. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Lundarskóli - umsókn um byggingarleyfi fyrir grillskýli
Málsnúmer 2015100134Erindi dagsett 20. október 2015 þar sem Jón Birgir Gunnlaugsson f.h. hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis og framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um byggingarleyfi fyrir grillskýli á lóð Lundarskóla lnr. 147482. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Kjarnalundur 150012 - farmsímaloftnet - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2015110031Erindi dagsett 3. nóvember 2015 þar sem Jóhann M. Kristinsson f.h. Símans hf, kt. 460207-0880, sækir um uppsettningu á farsímaloftneti utan á Kjarnalundi 150012. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jóhann M. Kristinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Hlíðarholtsvöllur - dómhús - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2015110002Erindi dagsett 2. nóvember 2015 þar sem Sigfús Ólafur Helgason f.h. Hestamannafélagsins Léttis, kt. 430269-6849, sækir um stöðuleyfi fyrir dómhúsi við Hlíðarholtsvöll.
Skipulagsstjóri frestar erindinu þar sem mannvirkið uppfyllir ekki ákvæði gr. 2.6.1. í byggingarreglugerð.
Hafnarstræti 45 - umsókn um að breyta húsi í eina íbúð
Málsnúmer 2015110032Erindi dagsett 3. nóvember 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Sigurðar Karls Jóhannssonar skilar inn reyndarteikningum og sækir um að breyta húsi nr. 45 við Hafnarstræti í eina íbúð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.