Framkvæmdaráð - 340
- Kl. 09:30 - 12:05
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 340
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður tæknideildar
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista mætti til fundar í forföllum Þorsteins Hlyns Jónssonar. <br />
Skipulagsnefnd hefur óskað eftir umsögn um tillögur skipulagsstjóra að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Seinni umræða.
Framkvæmdaráð felur bæjartæknifræðingi að koma athugasemdum framkvæmdaráðs er varðar aðalskipulagið á framfæri við skipulagsstjóra.
Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2015080078Farið yfir 10 mánaða stöðu aðalsjóðs og stöðu á framkvæmdum fyrir árið 2016
Framkvæmdaráð óskar eftir viðauka við snjómokstur að upphæð 30 milljónir króna. Jafnframt er óskað eftir leiðréttingu á leigu vegna gatna þar sem ekki fer saman áætlun á leigu og þeirri upphæð sem millifærð er.
Framkvæmdaráð felur bæjartæknifræðingi að fá leiðréttingu frá fjárreiðudeild vegna skekkju milli eignasjóðs og aðalsjóðs vegna umhverfisátaksverkefna (afmælisátakið frá 2012).Snjómokstur yfirferð á fyrirkomulagi
Málsnúmer 2016120011Kynntar tillögur um skipulag við snjómokstur og gerð grein fyrir vinnu starfshóps um verkefnið.
Framkvæmdaráð lýsir áhyggjum sínum af þeim miklu skemmdum sem orðið hafa vegna snjómoksturs í bæjarlandinu.
Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi kl. 11:47.
Önnur mál í framkvæmdaráði 2016
Málsnúmer 2016010009Rætt um ráðningu í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað vegna ráðningar í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Í samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar sem samþykkt var í bæjarstjórn í seinna sinn 17. mars 2015, segir í 50. gr. um ráðningar í æðstu stjórnunarstöður: "Bæjarstjóri, í umboði bæjarstjórnar og að fenginni umsögn viðkomandi fagnefnda, ræður embættismenn sem heyra beint undir hann í skipuriti svo og framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem eru í eigu bæjarsjóðs og veitir þeim lausn frá starfi." Í ljósi þessa ákvæðis geri ég alvarlega athugasemd við þá ákvörðun bæjarstjóra að leita ekki eftir umsögn stjórnar framkvæmdaráðs við ráðningu í stöðu sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Formaður framkvæmdaráðs óskar bókað eftirfarandi svar við athugasemdum Njáls eftir að hafa haft samráð við bæjarstjóra;
Samkvæmt 50 gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarkaupstaðar segir að bæjarstjóri, í umboði bæjarstjórnar og að fenginni umsögn viðkomandi fagnefnda, ráði embættismenn sem heyra beint undir hann í skipuriti. Samkvæmt nánari skilgreiningu á hverjir teljist embættismenn segir í 9. gr. samþykktar fyrir framkvæmdaráð að bæjarstjóri ráði deildarstjóra framkvæmdadeildar og framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar að fenginni umsögn framkvæmdaráðs.
Bæjarráð sem stjórnsýslunefnd bæjarins samþykkti samhljóða á fundi sínum 29. september 2016 að leggja niður störf deildarstjóra framkvæmdadeildar og framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar. Bæjarstjórn staðfesti bókunina samhljóða 4. október sl.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 13. október sl. eftirfarandi bókun um nýjar stöður sviðsstjóra hjá Akureyrarbæ; Bæjarráð samþykkir framlagðar starfslýsingar. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra og aðgerðahópi umboð til að auglýsa stöður sviðsstjóra lausar til umsóknar og ganga frá ráðningum í samráði við bæjarráð.Framkvæmdaráði og stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar ber því ekki að veita umsagnir vegna ráðningar sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs samkvæmt núverandi samþykktum og ofangreindri bókun bæjarráðs.