Ungmennaráð - 26
- Kl. 16:00 - 18:00
- Íþróttahöllin
- Fundur nr. 26
Nefndarmenn
- Alexía Lind Ársælsdóttir
- Ásta Sóley Hauksdóttir
- Bjarni Hólmgrímsson
- Elva Sól Káradóttir
- Freyja Dögg Ágústudóttir
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- Telma Ósk Þórhallsdóttir
- Þór Reykjalín Jóhannesson
Starfsmenn
- Sigríður Ásta Hauksdóttirverkefnastjóri
- Arnar Már Bjarnasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
- Hafsteinn Þórðarsonfundarritari
Ungmennaráð - breytingar í nefndum og kosning áheyrnarfulltrúa 2022
Málsnúmer 2022030297Nýr nefndarfulltrúi í ungmennaráð.
Þann 6. apríl sl. var skipaður síðasti fulltrúi í ungmennaráð.
Nýr fulltrúi í ráðið er: Freyja Dögg Ágústudóttir.Fræðsla fyrir ungmennaráð
Málsnúmer 2020120160Hópefli, hlutverk, verkefni og hagnýt atriði fyrir ungmennaráð.
Fræðsla, umræður og samvinna um hlutverk og verkefni ungmennaráðs.
Ungmennaráð - breytingar í nefndum og kosning áheyrnarfulltrúa 2022
Málsnúmer 2022030297Tilnefning varaáheyrnarfulltrúa ungmennaráðs í fræðslu- og lýðheilsuráði.
Ungmennaráð tilnefndi Elvu Ósk Káradóttur sem nýjan varaáheyrnarfulltrúa í fræðslu- og lýðheilsuráði. Tilnefning gildir aftur í tímann frá 17. febrúar sl. þar sem láðist að færa rétt inn í fundargerð.
Barnvænt sveitarfélag - skipan stýrihóps
Málsnúmer 2022030625Tilnefning 4 fulltrúa ungmennaráðs í stýrihóp barnvæns sveitarfélags.
Kynnt var skipan stýrihóps um barnvænt sveitarfélag fyrir fulltrúum ungmennaráðs.
Önnur mál
Málsnúmer 2020120160Verkefnisstjóra barnvæns sveitarfélags falið að hafa samband við öldungaráð með samráð og samvinnu við ungmennaráð í huga.
Verkefnisstjóra barnvæns sveitarfélag falið að leita eftir tölulegum upplýsingum um fjölda barna á Akureyri með annað móðurmál en íslensku og börn með flóttabakgrunn.
Umræða um þolpróf (Píp test) í grunnskólum bæjarins ásamt skyldusundi.
Ráðið lýsir áhuga á að kynnast og fara í ferð út fyrir landsteinana t.d. í gegnum verkefni eins og Evrópu unga fólksins.
Ráðið bókar sérstaklega að óska eftir fundi með Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamálaráðherra um framtíðarsýn hans um stöðu barna á Íslandi, verkefnið barnvænt Ísland og frekari möguleika á samstarfi hans og ráðsins m.t.t. farsældar barna. Verkefnisstjóra barnvæns sveitarfélags falið að senda ráðherra erindi.