Fræðsluráð - 14
- Kl. 13:30 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 14
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Brynhildur Pétursdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Skólastefna nýsmíði 2017
Málsnúmer 2017080125Laufey Petrea Magnúsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar HA mætti á fundinn og kynnti vinnulag við mótun nýrrar skólastefnu.
Fræðsluráð þakkar Laufeyju fyrir greinargóða kynningu.Fræðsluráð samþykkir að stofna stýrihóp fyrir nýsmíði skólastefnu fyrir Akureyrarbæ.
Stýrihópinn skipa:
Dagbjört Pálsdóttir (varamaður: Dagný Þóra Baldursdóttir)
Brynhildur Pétursdóttir (varamaður: Baldvin Valdemarsson)
Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Verkefnisstjóri.
Sviðsstjóra fræðslusviðs er falið að gera erindisbréf fyrir fulltrúa stýrihópsins.
Rekstur fræðslumála 2017
Málsnúmer 2017040126Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður reksturs fór yfir rekstur fræðslumála fyrir tímabilið janúar-júlí 2017.
Nútímavæðing í skólum
Málsnúmer 2017080076Dagbjört Pálsdóttir formaður fræðslusviðs fór yfir hugmyndir um nútímavæðingu í skólum. Dagbjört sagði m.a. frá fundi sem hún átti með skólastjórnendum um nýtingu tækni í skólastarfi.
Fjölskyldudeild - samningur við talmeinafræðinga
Málsnúmer 2015090295Brynhildur Pétursdóttir mætti til fundar kl. 14:55. <br />Sigurður Freyr Sigurðarson vék af fundi kl. 15:00. <br />
Helga Vilhjálmsdóttir forstöðumaður skólaþjónustu fór yfir endurnýjun samnings við talmeinafræðinga.
Lagt fram til kynningar.Ytra mat á leikskólum 2017 - Lundarsel
Málsnúmer 2016100150Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri á leikskólanum Lundarseli fór yfir helstu niðurstöður ytra mats mennta- og menningarmálaráðuneytis á leikskólanum Lundarseli.
Fræðsluráð þakkar Björgu fyrir greinargóða yfirferð á ytra mati leikskólans. Skýrsla um ytra mat mennta- og menningarmálaráðuneytis á leikskólanum Lundarseli verður birt á heimasíðu leikskólans Lundarsels.Upplýsingar um dagvistunar- og leikskólamál
Málsnúmer 2017010168Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi og Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður reksturs fóru yfir áætlanir um leikskólarými og innritanir fyrir haustið 2018.