Bæjarráð - 3366
- Kl. 09:00 - 10:40
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3366
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Logi Már Einarssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Elín Dögg Guðjónsdóttirfundarritari
Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun 2012-2013
Málsnúmer 20111100026. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 11. apríl 2013:\nLögð fram til kynningar drög að rekstrar- og samstarfssamningi við Íþróttafélagið Þór og drög að rekstrarstyrktarsamningi við Fimleikafélag Akureyrar.\nÍþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að samningum við Íþróttafélagið Þór og Fimleikafélag Akureyrar og vísar samningsdrögum til bæjarráðs.\nTryggvi Þór Gunnarsson formaður íþróttaráðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að rekstrar- og samstarfssamningi við Íþróttafélagið Þór og fyrirliggjandi drög að rekstrarstyrktarsamningi við Fimleikafélag Akureyrar.

Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun 2012-2013
Málsnúmer 20111100024. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 18. apríl 2013:\nLögð fram til kynningar drög að rekstrar- og samstarfssamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar.\nÍþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að samningi við Knattspyrnufélag Akureyrar og vísar samningsdrögum til bæjarráðs.\nTryggvi Þór Gunnarsson formaður íþróttaráðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að rekstrar- og samstarfssamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar.

Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013
Málsnúmer 2012010167Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 18. apríl 2013. Fundargerðin er í 11 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 7. lið til fjármálastjóra, 2. og 9. lið til Akureyrarstofu, 3. lið til skóladeildar, 4. og 8. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði, 5. lið til íþróttaráðs, 6., 10. og 11. lið til framkvæmdadeildar,

Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013010212Lögð fram fundargerð 48. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dags. 15. apríl 2013. Fundargerðin er í 5 liðum og má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdir

Fundargerðin var lögð fram til kynningar í bæjarráði.

Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013010076Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 10. apríl 2013.\nFundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2012-2013

Fundargerðin var lögð fram til kynningar í bæjarráði.

Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir 2010-2020
Málsnúmer 2010020035Lögð fram fundargerð 68. fundar hverfisráðs Hríseyjar dags. 23. apríl 2013. Fundargerðin er í 10 liðum og má finna á slóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

1. - 6. liður ásamt 10. lið eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði. Bæjarráð vísar 7. og 9. lið til framkvæmdadeildar, 8. lið til skipulagsdeildar.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013020001Lögð fram til kynningar fundargerð 805. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 19. apríl 2013.\nFundargerðina má finna á vefslóðinni:\nhttp://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

Fundargerðin var lögð fram til kynningar í bæjarráði.

Málræktarsjóður - aðalfundur 2013
Málsnúmer 2013040237Erindi dags. 22. apríl 2013 frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs. Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn föstudaginn 7. júní nk. kl. 15:30 á Hótel Sögu, Snæfelli. Akureyrarbær á rétt á að tilnefna einn mann í fulltrúaráðið.\nTilnefningar fyrir aðalfundinn 2013 þurfa að berast framkvæmdastjóra sjóðsins bréflega eða í tölvupósti, kari@hi.is eigi síðar en 17. maí nk.
Bæjarráð tilnefnir Hólmkel Hreinsson sem aðalmann og Þórgný Dýrfjörð sem varamann í fulltrúaráðið og felur Hólmkeli að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.
Stapi lífeyrissjóður - ársfundur 2013
Málsnúmer 2013040125Erindi dags. 15. apríl 2013 frá Kára Arnóri Kárasyni f.h. stjórnar Stapa lífeyrissjóðs þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins fimmtudaginn 16. maí nk. í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri og hefst fundurinn kl. 14:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á ársfundinum.