Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 1
- Kl. 13:00 - 14:18
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Jón Heiðar Jónssonformaður
- Tryggvi Már Ingvarsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Jón Heiðar Daðason
Starfsmenn
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Aðgengi að bílastæðum fyrir fatlaða við Skipagötu
Málsnúmer 2012121158Rætt um bílastæði fyrir fatlaða sem staðsett eru á bílastæðareitnum við Skipagötu. Þau séu of mjó til að henta fötluðum auk þess sem mörg þeirra eru illa staðsett og ekki í hæð við gönguleiðir. Leifur Þorsteinsson kynnti deiliskipulagsuppdrátt af miðbænum.
Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra óskar eftir við framkvæmdadeild að úrbætur verði gerðar á bílastæðum fyrir hreyfihamlaða í miðbænum í samráði við formann nefndarinnar.
Einnig óskar nefndin eftir samráði við framkvæmdadeild við endurbætur og framkvæmdir á götum og bílastæðum á miðbæjarsvæðinu samkvæmt nýju deiliskipulagi.Upplýsingavefur um aðgengi
Málsnúmer 2015020135Formaður nefndarinnar kynnti vefsíðuna "gottadgengi.is" sem er upplýsingavefur um aðgengi.
Umferðarljós - hljóðljós
Málsnúmer 2012060053Á fundi sínum 10. september 2012 beindi samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra þeirri ósk til framkvæmdadeildar að umferðar- og gangbrautarljósum með hljóðmerkjum verði fjölgað í bænum.
Lagt var fram yfirlit frá framkvæmdadeild um hvað gert hefur verið í þeim málum.Óskað er eftir frekari upplýsingum um stöðu mála, kostnað o.fl. frá framkvæmdadeild og óskað er eftir að fulltrúi framkvæmdadeildar komi á næsta fund nefndarinnar.
Málinu frestað.