Umhverfis- og mannvirkjaráð - 2
- Kl. 08:15 - 09:45
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Jón Orri Guðjónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing
Málsnúmer 2014030109Lagt fram minnisblað dagsett 17. janúar 2017 um verkefnið þar sem óskað er eftir tilnefningu nefndarmanns í stýrihóp vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð skipar Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B-lista í stýrihópinn.
Molta - samningur um verktökuvinnu og sérfræðiþjónustu sem Molta ehf hyggst vinna fyrir Flokkun ehf
Málsnúmer 2017010358Lagður fram til kynningar samningur á milli Moltu ehf og Flokkunar ehf dagsettur 13. janúar 2017 ásamt fundargerð frá hluthafafundi Flokkunar ehf dagsett 13. janúar 2017.
Leiguíbúðir - bygging lítilla íbúða
Málsnúmer 2017010357Lögð fram greinargerð dagsett 25. janúar 2017 um framkvæmdirnar ásamt umsókn um stofnframlög.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu og sækja um stofnframlögin.
Áætlun umhverfis- og auðlindaráðherra vegna útskiptingar dekkjakurls á leik- og íþróttavöllum
Málsnúmer 2017010059Lögð fram aðgerðaráætlun umhverfis- og auðlindaráðuneytis dagsett 6. janúar 2017 vegna útskiptingar dekkjakurls á leik- og íþróttavöllum.
Framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar rúmast vel innan marka aðgerðaráætlunar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
SVA - samningur um birtingu leiðakerfis og aksturs á Akureyri á heimasíðu Strætó bs og í appi
Málsnúmer 2017010342Lögð fram drög að samningi við Strætó bs dagsett 17. janúar 2017 um birtingu leiðakerfis og aksturs strætisvagna á Akureyri á heimasíðu Strætó bs og í Strætó appinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn og felur sviðsstjóra að ganga frá honum.
Íshokkísamband Íslands - styrkbeiðni vegna HM kvenna á Akureyri 2017
Málsnúmer 2016120020Lagt fram minnisblað dagsett 26. janúar 2017 vegna beiðnar frá Skautafélagi Akureyrar dagsett 11. janúar 2017 um að búningsklefar verði stækkaðir fyrir heimsmeistaramót kvenna í íshokkí sem fram fer á Akureyri í febrúar og mars 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í framkvæmdirnar og er áætlaður kostnaður um 3,6 milljónir króna.
Verkfundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010343Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Bygging lítilla íbúða: 6. fundur verkefnisliðs dagsettur 19. desember 2016.
Nökkvi: 8.- 10. fundur verkefnisliðs dagsettir 21. nóvember og 15. desember 2017 og 12. janúar 2017.
Sundlaug Akureyrar rennibrautir og pottar: 1.- 5. verkfundur dagsettir 2. og 23. nóvember og 7. desember 2016, 4. og 18. janúar 2017.