Bæjarráð - 3435
- Kl. 09:00 - 11:46
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3435
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Rekstur - staða mála - embættismenn
Málsnúmer 2014090001Skúli Gautason framkvæmdastjóri Akureyrarstofu mætti á fund bæjarráðs og fór ásamt Loga Má Einarssyni formanni stjórnar Akureyrarstofu yfir rekstrarstöðu og horfur í málaflokknum.\nEinnig sat Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fund bæjarráðs undir þessum lið.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015-2018
Málsnúmer 2014060172Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.\nJón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2015-2018 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

GáF ehf - fundargerð aðalfundar
Málsnúmer 2014100038Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar GáF ehf fyrir árin 2012 og 2013 sem haldinn var 16. október sl.

Bæjarstjórn Akureyrar - kjarasamninganefnd
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga um breytingu á skipan aðalmanns og varaformanns í kjarasamninganefnd.
Bæjarráð skipar Silju Dögg Baldursdóttur sem aðalmann og varaformann í kjarasamninganefnd í stað Höllu Bjarkar Reynisdóttur.Fræðslunefnd - skipun nefndarmanna
Málsnúmer 2014100302Lögð fram tillaga um breytingu á skipan aðalmanns í fræðslunefnd.
Bæjarráð skipar Dagnýju Magneu Harðardóttur sem aðalmann í fræðslunefnd í stað Katrínar Bjargar Ríkarðsdóttur.
Bæjarstjórn Akureyrar og borgarstjórn Reykjavíkur - samstarfsvettvangur
Málsnúmer 2013020193Skipun fulltrúa Akureyrarbæjar í samstarfsnefnd vegna sameiginlegs fundar bæjarstjórnar Akureyrar og borgarstjórnar Reykjavíkur.

Bæjarráð skipar Eirík Björn Björgvinsson bæjarstjóra, Matthías Rögnvaldsson forseta bæjarstjórnar, Guðmund Baldvin Guðmundsson formann bæjarráðs og Margréti Kristínu Helgadóttur bæjarfulltrúa í samráðsnefndina.

Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2014/2015
Málsnúmer 2014090067Lagt fram til kynningar bréf dagsett 20. október 2014 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi endurreiknað byggðakvóta til allra sveitarfélaga á grundvelli breyttra gagna frá Fiskistofu. Úthlutaður byggðakvóti fiskveiðiársins 2014/2015 er nú 47 þorskígildistonn fyrir Grímsey og 158 þorskígildistonn fyrir Hrísey.

Önnur mál
Málsnúmer 2014010044Bæjarráð Akureyrar óskar Reykjavíkurborg til hamingju með umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.