Framkvæmdaráð - 332
22.07.2016
Hlusta
- Kl. 08:05 - 09:15
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 332
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti ekki til fundar né varamaður hennar.[line]
Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2015080078Lagðar fram niðurstöður opnunar tilboðs í Moldarlosunarveg sem opnað var 15 júlí sl.
Tvö tilboð bárust.
Einnig voru kynnt tilboð í bíla og tæki fyrir Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar og malbikunarframkvæmdir sumarsins.Framkvæmdaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda Finn ehf að upphæð kr. 10.664.820.
Bæjartæknifræðingi er falið að ganga frá samkomulagi við Golfklúbb Akureyrar um aðkomu þeirra að málinu.Önnur mál í framkvæmdaráði 2016
Málsnúmer 2016010009Rætt um nýtt leiðakerfi SVA og seinkun á útboði nýrra metanvagna sem opna átti í júlí, en vegna breytinga á útboðsgögnum frestast það fram í lok september nk.