Skólanefnd - 5
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 5
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigfúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Kristín Jóhannesdóttirfulltrúi skólastjóra
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- Sædís Inga Ingimarsdóttirfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Kristlaug Þ Svavarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Áshildur Hlín Valtýsdóttirfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Álag og fjarvera í leikskólum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2013120098Karl Frímannsson starfsþróunarstjóri mætti á fundinn og gerði ásamt Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa grein fyrir vinnu við verkefnið að kanna álag og fjarveru í leikskólum Akureyrarbæjar, eins og hún stendur núna.

Innritun í leikskóla 2014
Málsnúmer 2014010053Fyrir fundinn voru lagðar fram til kynningar upplýsingar um stöðuna í innritun í leikskóla Akureyrarbæjar. Þar kemur fram að líklegt er að hægt verði að bjóða a.m.k. foreldrum tuttugu og tveggja 18 mánaða barna pláss. Þetta eru börn sem fædd eru í janúar-mars 2013.

Skilyrði fyrir veitingu leyfis til daggæslu barna
Málsnúmer 2014020151Fyrir fundinn var lögð tillaga að breytingu á skilyrðum fyrir veitingu og endurnýjun leyfis til daggæslu barna. Tillagan felur það í sér að til að fá leyfi eða endurnýjun þarf að liggja fyrir leyfisbréf samkvæmt samþykkt um hundahald og kattahald í Akureyrarkaupstað.

Skólanefnd samþykkir tillöguna samhljóða.

Tryggvi Þór Gunnarsson yfirgaf fundinn kl. 14:50.
Auglýsingar í leik- og grunnskólum - viðmiðunarreglur
Málsnúmer 2014010209Fyrir fundinn var lögð endurbætt tillaga að viðmiðunarreglum um auglýsingar í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar. Afgreiðslu tilögunnar var frestað á síðasta fundi skólanefndar og óskað eftir því að fræðslustjóri gerði á henni breytingar í samræmi við umræður á fundinum.

Skólanefnd samþykkir tillöguna samhljóða.

Hríseyjarskóli - ýmsar ábendingar frá Áhugahópi um framtíð Hríseyjar
Málsnúmer 2014020105Erindi dags. 28. janúar 2014 frá Áhugahópi um framtíð Hríseyjar. Í erindinu eru niðurstöður málþings um framtíð Hríseyjar sem snerta skólahald í Hrísey reifaðar.

Skólanefnd þakkar áhugahópnum fyrir erindið og felur fræðslustjóra að vinna að framgangi þess í samvinnu við hópinn og stjórnanda og starfsmenn Hríseyjarskóla.