Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 569
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 569
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannesson
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Njarðarnes 4 - frístundahús - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2016010058Erindi dagsett 6. janúar 2016 þar sem Sigurgeir Svavarsson f.h. Sigurgeirs Svavarssonar ehf., kt. 680303-3630, sækir um stöðuleyfi fyrir frístundahúsum sem verða byggð á lóð nr. 4 við Njarðarnes.
Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
Undirhlíð 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2015120128Erindi dagsett 14. desember 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Undirhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kjarnalundur lnr. 150012 - byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss
Málsnúmer 2014120088Erindi dagsett 24. september 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Kjarnalundar ehf., kt. 541114-0330, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnalundi, landnr. 150012. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Innkomnar teikningar 22. desember 2015.Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Langamýri - spennistöð - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2015110145Erindi 20. nóvember 2015 þar sem Norðurorka hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar teikningar 23. desember 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Nonnahagi 4 - spennistöð - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2015110129Erindi dagsett 19. nóvember 2015 þar sem Gunnar K. Gunnarsson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð við Nonnahaga 4. Innkomnar teikningar eftir Tryggva Tryggvason þann 20. nóvember 2015. Innkomnar teikningar 23. desember 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Viðburðir - götu- og torgsala 2016
Málsnúmer 2015120155Erindi dagsett 29. desember 2015, þar sem Arnar Þór Þorsteinsson f.h. GA Samvirkni ehf., kt. 630608-0740, sækir um langtíma leyfi fyrir söluvagni við sundlaug Akureyrar.
Meðfylgjandi er leyfi frá Fasteignum Akureyrar og starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2016.
Ásvegur 21 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2015120212Erindi dagsett 23. desember 2015 þar sem Benedikt Viggósson sækir um leyfi fyrir reykröri vegna kamínu á húsi nr. 21 við Ásveg. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og teikningar.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og bendir á að sækja þarf um byggingarleyfi með tilskyldum gögnum skv. byggingarreglugerð.
Jaðarstún 21-23 - framkvæmdafrestur
Málsnúmer 2013110275Erindi dagsett 18. desember 2015 þar sem Árveig Aradóttir og Andri Þór Bjarnason sækja um frest á framkvæmdaleyfi fyrir húsi nr. 21-23 við Jaðarstún.
Skipulagsstjóri samþykkir að veita framkvæmdafrest til 1. mars 2016
Jaðarstún 21-23 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2015120174Erindi dagsett 18. desember 2015 þar sem Bjarni Sigurðsson f.h. Árveigar Aradóttur og Andra Þórs Bjarnasonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 21-23 við Jaðarstún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.