Stjórn Akureyrarstofu - 80
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 80
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Sigmundur Ófeigsson
- Jón Hjaltason
- Sigrún Stefánsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Iðnaðarsafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn
Málsnúmer 2010090020Stjórn Akureyrarstofu skipar 2 fulltrúa í stjórn Iðnaðarsafnsins og 2 til vara.
Minjasafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn
Málsnúmer 2010090018Stjórn Akureyrarstofu skipar 3 fulltrúa í stjórn Minjasafnsins og 3 til vara.
Vanadís - Fornar sagnir og spár - styrkumsókn
Málsnúmer 2010070069Erindi dags. 30. ágúst 2010 frá Valgerði H. Bjarnadóttur þar sem hún óskar eftir styrk til verkefnisins Fornar sagnir og spár.
<DIV><DIV>Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 til verkefnisins.</DIV></DIV>
Atvinnuátaksverkefni Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunar
Málsnúmer 2009020174Rætt um framhald atvinnuátaksverkefna á árinu 2010 í kjölfar þess að bæjarráð ákvað að auka fjárheimildir til verkefnanna um 10 mkr. Yfirlit um verkefnin lagt fram til kynningar.
<DIV></DIV>
Fjárhagsáætlun 2011 - stjórn Akureyrarstofu
Málsnúmer 2010100024Farið yfir ramma og vinnulag við gerð áætlunarinnar. Fyrir liggur að hagræðingarkrafa í menningarmálum er 25 mkr. fyrir árið 2011.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela framkvæmdastjóra að ræða við forstöðumenn stofnana og fulltrúa þeirra aðila sem fá samningsbundin framlög frá Akureyrarbæ um þá hagræðingarvinnu sem framundan er.