Íþróttaráð - 125
07.02.2013
Hlusta
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 125
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Þorvaldur Sigurðsson
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Anna Jenný Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Örvar Sigurgeirssonáheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda
Málsnúmer 2006040018Matthías Rögnvaldsson frá Stefnu hugbúnaðarhúsi mætti og kynnti TÍM, sem er rafrænt skráningarkerfi sem heldur utan um þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
<DIV>Íþróttaráð þakkar Matthíasi fyrir heimsóknina og kynninguna.</DIV>
Heimasíða íþróttamála
Málsnúmer 2013020027Efnistök heimasíðu íþróttamála lögð fram til kynningar og umræðu.
Ánægjuvogin - styrkur íþrótta
Málsnúmer 2013020028Niðurstöður könnunar meðal ungmenna sem stunda íþróttir innan aðildarfélaga ÍBA lagðar fram til kynningar. Rannsóknir og greining vann könnunina á landsvísu með ÍSÍ og UMFÍ.
Íþóttafélagið Þór - aðkoma Akureyrarbæjar að breytingum á anddyri Hamars/Bogans
Málsnúmer 2012120018Bókun og afgreiðsla stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar frá 14. desember 2012 lögð fram til kynningar.
<DIV></DIV>