Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 939
26.10.2023
Hlusta
- Kl. 13:00 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 939
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Austursíða 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023040222Erindi dagsett 13. október 2023 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 6 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hlíðarbraut - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023100851Erindi dagsett 19. október 2023 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir uppsetningu á rafmagnshleðslubúnaði á bensínstöðvarlóð Hlíðarbrautar. Innkomnar teikningar eftir Guðmund Odd Víðisson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.