Bæjarráð - 3780
- Kl. 08:00 - 08:55
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3780
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Heimir Örn Árnason
- Hlynur Jóhannsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Brynjólfur Ingvarssonáheyrnarfulltrúi
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2022 - árshlutauppgjör
Málsnúmer 2022090397Lagt fram árshlutauppgjör janúar-júní 2022.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristjana Hreiðarsdóttir aðalbókari sátu fund bæjarráðs undir þessum lið. Gunnar Már Gunnarsson sat fundinn undir þessum lið og þá var Hulda Elma Eysteinsdóttir í fjarfundi.Bæjarráð vísar árshlutauppgjöri til umræðu í bæjarstjórn.
Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022-2025 - viðauki
Málsnúmer 2021030524Lagður fram viðauki 6.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðauka 6 upp á kr. 8.000.000 vegna framkvæmda við ljósleiðara til Hríseyjar og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Krossanesbraut 0 - Lundeyri - uppkaup vegna skipulags
Málsnúmer 2021120855Lagt fram kauptilboð Akureyrarbæjar dagsett 7. september 2022 varðandi kaup á Lundeyri við Krossanesbraut á Akureyri.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir kaup á Lundeyri vegna skipulags og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að ganga frá kaupunum.
Lóð Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO)
Málsnúmer 2020090447Lagt fram erindi frá BSO dagsett 30. ágúst 2022 þar sem óskað er eftir áframhaldandi framlengingu á stöðuleyfi stöðvarinnar við Strandgötu.
Bæjarráð samþykkir að veitt verði framlenging á stöðuleyfi stöðvarinnar til 31. maí 2023.
Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir 2022
Málsnúmer 2022031302Lögð fram til kynningar fundargerð 277. fundar stjórnar Norðurorku hf. dagsett 30. ágúst 2022.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2022
Málsnúmer 2022010393Lögð fram til kynningar fundargerð 912. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 26. ágúst 2022.
Fylgiskjöl