Fræðsluráð - 37
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 37
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Anna Bergrós Arnarsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Atli Þór Ragnarssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Erla Rán Kjartansdóttirvaramaður grunnskólakennara
- Hafdís Ólafsdóttirfulltrúi leikskólakennara
- Hildur Lilja Jónsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
- Inda Björk Gunnarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Erna Rós Ingvarsdóttirfundarritari
Lundarskóli - A-álma - LUSK
Málsnúmer 2020060448Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs og Andrea Sif Hilmarsdóttir verkefnastjóri nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið og kynntu teikningar af A-álmu Lundarskóla.
GLSK - Glerárskóli - endurbætur á anddyri, A og C álmu
Málsnúmer 2020090038Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs og Andrea Sif Hilmarsdóttir verkefnastjóri nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir vinnu við endurbætur á Glerárskóla.
Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs kom til fundar kl. 14:40.
Skólaakstur úr Innbænum
Málsnúmer 2020090428Erindi frá fulltrúa foreldra grunnskólabarna í Innbænum þar sem óskað er eftir að ákvörðun um að leggja af skólaakstur úr Innbænum verði tekin til endurskoðunar.
Fræðsluráð staðfestir þá ákvörðun sem tekin var við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 að leggja af skólaakstur úr Innbænum frá og með haustinu 2020.
Áætlun Strætisvagna Akureyrar miðast við upphaf skólastarfs í Nausta- og Brekkuskóla og því eiga öll börn kost á skólaakstri sem búa í Innbænum. Öryggi barna er tryggt svo sem kostur er á gönguleiðum í og úr skóla þar sem gangstéttir eru meðfram öllum götum á leiðinni. Auk þess er gönguleiðin á svæði þar sem hámarkshraði er 30 km. Fræðsluráð leggur jafnframt áherslu á áframhaldandi samráð við umhverfis- og mannvirkjasvið varðandi snjómokstur og almenningssamgöngur í því skyni að tryggja öryggi skólabarna allt árið.
Fylgiskjöl