Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 933
- Kl. 13:00 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 933
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Gleráreyrar 1 - umsókn um skilti
Málsnúmer 2023080175Erindi dagsett 4. ágúst 2023 þar sem Elva Ýr Kristjánsdóttir f.h. Eikar fasteignafélags sækir um leyfi fyrir endurnýjun og stækkun ljósaskiltana á lóð Glerártorgs við Gleráreyrar 1. Umrædd stækkun er úr 8 m² í 15,4 m². Jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.
Meirihluti skipulagsráðs tók jákvætt í erindið á fundi sínum 9. ágúst sl.Byggingarfulltrúi samþykkir uppsetningu skiltanna. Skiltin skulu aðeins auglýsa starfsemi, vörur og þjónustu í húsunum, ekki vera með hreyfimyndum og hver auglýsing skal standa í að minnsta kosti eina mínútu.
Hafnarstræti 39 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2022121117Erindi dagsett 28. desember 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd 603 ehf. sækir um að fjölga fasteignum í húsi nr. 39 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr tveimur í þrjár. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Óseyri 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023090512Erindi dagsett 11. september 2023 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson fyrir hönd Módelhúsa ehf, sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á hús nr. 1 við Óseyri.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Óseyri 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023090394Erindi dagsett 8. september 2023 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Húsfélags Óseyrar 2, sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir utahússklæðningu ásamt endurnýjun glugga á hús nr. 2 við Óseyri.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Goðanes 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021051275Erindi dagsett 8. september 2023 þar sem Björn Guðbrandsson fyrir hönd Festingar ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir húsi á lóð nr. 12 við Goðanes.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.